Biður Liverpool að slaka á reglunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. febrúar 2026 09:30 Unai Emery segir það vera Liverpool að kenna að Harvey Elliott hafi aðeins spilað sjö leiki. Neville Williams/Aston Villa FC via Getty Images Unai Emery vill spila Harvey Elliott með liði Aston Villa en strangir kaupskilmálar Liverpool koma í veg fyrir það að sögn þjálfarans.
Elliott er á láni hjá Aston Villa frá Liverpool og samkvæmt lánssamkomulaginu þurfa Villa-menn að festa kaup ef hann spilar meira en tíu leiki. Aston Villa vill ekki kaupa hann í sumar en Unai Emery segist hafa not fyrir Elliott, sem hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum á tímabilinu fram að þessu. „Það eru tvær hliðar sem þarf að hafa í huga hérna. Íþróttahliðin og viðskiptahliðin. Ég er opinn fyrir því að spila Elliott meira því hann getur hjálpað okkur, en það er bara mín hlið af málunum. Hin hliðin er Liverpool“ sagði Emery. Harvey Elliott er í erfiðri stöðu og fær lítið að spila. Shaun Brooks - CameraSport via Getty Images Talið er að Aston Villa og Liverpool hafi verið í viðræðum um að fella þetta kaupsamkomulag niður en þær viðræður hafa ekki borið árangur. „Ég sagði við hann: Frá minni hlið séð áttu skilið að spila. En klásúlurnar eru þarna og Liverpool er með lykilinn. Ég hef sagt honum að mér myndi finnast sanngjarnt ef Liverpool fjarlægði klásúlurnar… Hann vill auðvitað spila, hann er ástríðufullur leikmaður og þetta tekur á hann“ sagði Emery einnig. Aston Villa heimsækir Bournemouth í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 15.00 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport 3.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Sjá meira