Má bjóða þér meiri háþrýsting, frú Sigríður Lára G. Sigurðardóttir og Valgerður Rúnarsdóttir skrifa 8. febrúar 2026 13:00 „Þú ert með alltof háan blóðþrýsting, frú Sigríður. Ekki örvænta, fáðu þér bara mikið af lakkrís, saltkjöti, hreyfðu þig sem minnst og reyndu líka að hafa brjálað að gera.” Frú Sigríður setur upp undrunarsvip og segir: „Ertu nú alveg viss, ég er ekki læknismenntuð en getur þetta ekki gert háþrýsting verri?” „Svona, svona, það er mikilvægast að þú hafir fullkomið frelsi til að gera það sem þig langar helst - við hunsum bara þessi vísindi.” Frú Sigríður var ekki hress með þessar ráðleggingar læknisins. Hún vissi að háþrýstingur getur leitt til hjartaáfalls, heilablóðfalls, nýrnabilunar o.fl. Að læknir styðjist ekki við fræðin og leggi sig fram við að lækka blóðþrýstinginn þykir henni ekki fagleg vinnubrögð. Fyrir skömmu sátu undirritaðar með þingmanni við pallborð á Læknadögum þar sem deginum hafði verið varið í að ræða skaðsemi áfengisneyslu í heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu. Þar kom meðal annars fram að nú þegar kostar áfengisneysla okkur skattborgara ríflega 100 milljarða króna árlega og eykst kostnaðurinn í takt við aukna neyslu. Mark Pearson, sérfræðingur hjá OECD, tók undir orð Ölmu Möller um að ríkiseinokun er mikilvægasta forvörnin, því án hennar er ekki hægt að beita lykilforvörnum til að draga úr áfengisneyslu í samfélaginu, en þær eru að stýra aðgengi, útsöluverði og banna auglýsingar. Fullkomlega blind á lýðheilsufræði sagði þingmaðurinn við pallborðið að hún stæði fyrir lýðheilsu en í sömu andrá að áfengissölu yrði að gefa frjálsa. Var hún svona illa upplýst eða er hún að verja hagsmuni einkaaðila? Já, áfengi tekur á hverju ári um 142 líf á Íslandi og eru óprúttnir söluaðilar farnir að maka krókinn á kostnað samfélagsins, en einkaaðilar velta milljörðum á ári með ólöglegri netsölu áfengis. Án þess að blikna talaði þingmaðurinn í þversögn við allt það sem læknar, annað heilbrigðisstarfsfólk og forvarnarfulltrúar höfðu bent á fyrr um daginn - og hafa bent á í áraraðir. En nei, hún vissi betur! Eða taldi sig gera það. Allir sem þekkja til lýðheilsuvísinda vita að þau eru byggð á gagnreyndri þekkingu en ekki persónulegum hugarheimi eða skoðunum, líkt og þeim sem þingmaðurinn var að viðra hér - enda tölum við aldrei um lýðheilsuskoðanir. Því spyr ég frú Sigríði hvort hún vilji fá sinn hækkaða blóðþrýsting (komi til þess) meðhöndlaðan með lyfjum eða persónulegum skoðunum? Því líkt og hún vill væntanlega að við læknar vinnum eftir bestu þekkingu hverju sinni viljum við að hún standi vörð um heilsu samfélagsins og þar með heilsu okkar allra - með því að hlusta á fræðin en ekki sitt eigið hjarta. Höfundar eru læknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lára G. Sigurðardóttir Heilbrigðismál Áfengi Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar