Stöndum vörð um gildi okkar og hugsjónir Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar 8. febrúar 2026 18:32 Nýju lífi hefur verið blásið í glæður umræðna um Evrópusambandsaðild Íslands. Á fáeinum misserum hafa skeð atburðir á hinu alþjóðlega sviði sem sem áður þóttu óhugsandi. Sumir svo mjög að hriktir í stoðum þeirrar heimsmyndar sem leit ljós í kjölfar heimstyrjaldarinnar síðari. Frelsi, friður, mannréttindi, lýðræði og virðing fyrir mannlegri reisn voru leiðarljós kynslóðarinnar sem háði blóðugusta stríð mannkynssögunnar og sór þess í kjölfarið dýran eið að slíkar hörmungar skyldu aldrei henda komandi kynslóðir. Sameinuð Evrópa Í sviðna mold meginlands Evrópu sáðu stórhuga menn fræi vonar. Von þeirra hefur vaxið og dafnað í tímans rás. Draumur um sameinaða Evrópu, sem stendur vörð um lífsgæði og frið hefur í fyllingu tímans orðið að veruleika. Ísland hefur notið ávaxta Evrópusamstarfsins að miklu leyti um langt skeið. Hefur lítil þjóð þannig látið að sér kveða í fjölþjóðlegri samvinnu um mannréttindi og menningararf á vettvangi Evrópuráðsins. Það samstarf hefur óumdeilanlega leitt af sér verulegar réttarbætur fyrir Íslendinga í áranna rás. Þá höfum við fengið smjörþefinn af þeim gríðarlega ábata sem fylgir fullri Evrópusambandsaðild fyrir tilstilli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Eftir stendur að stíga það skref til fulls, svo Ísland geti beitt sér af fullum mætti þegar ákvarðanir eru teknar um mikilvæga hagsmuni sambandsins. Eingöngu þannig geta Íslendingar eignast óskoraða hlutdeild í einni mögnuðustu stjórnmálatilraun sem stofnað hefur verið til. Tilraun sem hefur það að takmarki að tryggja efnahagslega velsæld og stöðugleika, standa vörð um réttindi borgaranna og hafa í hávegum þau grundvallargildi sem sameina aðildarríkin. Öxulveldi alræðisins Valdhafar þeir sem skáka í skjóli alræðis hafa tekið höndum saman á heimsvísu, í því augnamiði að gera útaf við frjálslynt lýðræði. Þessi öxulveldi samtímans eru útsmogin og svífast einskis við að ná takmarki sínu. Sameinuð og sterk Evrópa er þeim þyrnir í augum, þar sem gildin sem vega einna helst að ógnarstjórn þeirra eiga hér sterkar rætur. Þannig eru þeir boðnir og búnir að veita þjóðernissinnuðum íhaldsflokkum víðsvegar um álfuna liðsinni. Í umboði alræðisaflanna fara forsvarsmenn slíkra stjórnmálaafla mikinn gegn Evrópusambandinu og höfða til þjóðerniskenndar landa sinna með sögum af velmegunartímum þar sem þjóðir álfunnar nutu mikils uppgangs fyrir eigin rammleik. Þessar sögur eru velflestar uppspuni einn, enda hefur efnahag Evrópusambandsþjóða vaxið ásmegin með auknu samstarfi. Hugmyndin um glæsta fortíð, veröld sem aldrei var, er engu að síður eitt skæðasta vopnið í höndum íhaldsaflanna. Í sömu andrá harðna stríðsátök stöðugt á meginlandi Evrópu, þar sem hugrakkir menn og konur á víglínum Úkraínu standa vörð um þau grundvallargildi sem stofnanir samfélags okkar styðjast við. Þessi þversögn ætti að vekja upp áleitnar spurningar í hugum Íslendinga. Erum við þjóð sem trúir á ágæti frjálslyndis, lýðræðis, mannréttinda og réttarríkisins, eða munum við skipa okkur í sess með þeim sem upphefja ógnarstjórn á kostnað mannsandans? Rödd þjóðarinnar Fyrr en síðar fær þjóðin tækifæri til að svara þeirri spurningu sem borin er upp hér að ofan. Á vordögum verður lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi, þess efnis að halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það skal áréttað að engar töfralausnir er að finna á nokkrum þeim vanda sem þjóð getur staðið frammi fyrir. Á þeim umbrotatímum sem nú ganga yfir er þó ljóst að dugir ekkert hálfkák. Verður af þeim sökum að teljast bæði skynsamlegt og ábyrgt að Ísland skipi sér sinn réttmæta sess í bandalagi evrópskra þjóða, þar sem borin er virðing fyrir fullveldinu og eining ríkir um gildi og sýn á framtíðina. Það er þjóðarinnar að ákveða hvort þau gildi sem hér liggja til grundvallar, ásamt þeim efnahagslega ábata og uppgripum í viðskiptalífi sem að líkindum munu fylgja fullri aðild, skuli marka sameiginlegan farveg okkar. Um þetta hafa stjórnvöld verið skýr; þjóðinni skal treyst til að taka ákvörðun um hvort aðildarviðræður verði teknar upp að nýju. Þegar fram líða stundir verður það jafnframt þjóðin sem segir til um hvort sá samningur sem kemur upp úr viðræðunum sé henni að skapi. Satt og rétt? Upplýsingaumhverfi samtímans er um margt óáreiðanlegt. Þeir sem eiga tiltekinna fjárhagslegra eða pólitískra hagsmuna að gæta af óbreyttu ástandi hér á landi munu leitast við að afbaka umfjöllun um Evrópumálin í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Þá sýna dæmin og sanna að stjórnvöld þeirra ríkja sem stendur hvað mestur beygur af Evrópuhugsjóninni um mannlega reisn, frelsi, lýðræði, mannréttindi og réttarríkið munu ekki láta sitt eftir liggja við að sá fræjum ótta og óreiðu, í því augnamiði að ala á sundrungu meðal íslensku þjóðarinnar. Brýn nauðsyn stendur til þess að mæta slíkum áróðri og hvers kyns íhlutun af hendi óprúttinna aðila af röggsemi og festu í hvívetna. Sameinuð Evrópa er eitt hinsta vígi þeirra gilda sem lýðveldið Ísland hefur byggt á frá stofnun. Það er einlæg von mín að við stöndum með þeim gildum. Höfundur situr í stjórn og málefnaráði Viðreisnar, ásamt því að vera formaður Ungra Evrópusinna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Viðreisn Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun