„Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 19:27 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, lætur óánægju sína í ljós á hliðarlínunni í dag. Getty/Michael Regan Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var svekktur eftir 2-1 tap á heimavelli á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hans komst yfir þegar sextán mínútur voru til leiksloka en fékk svo á sig tvö mörk í uppbótartíma. „
Það gerðist margt, sem er eðlilegt í þessum leik. Við erum vonsviknir að fara héðan án stiga,“ sagði Arne Slot í samtali við BBC Match of the Day. „Í fyrri hálfleik var Manchester City betra liðið án þess að skapa mörg stór færi en þeir voru meira með boltann á okkar vallarhelmingi. Í seinni hálfleik vorum við með yfirhöndina og áttum góða kafla. Við komumst í 1-0 og gáfum varla neitt frá okkur. Rétt fyrir leikslok fellur ein sveigð fyrirgjöf vel fyrir þá og staðan er 1-1. Við reyndum að koma í veg fyrir þetta en þeir unnu fyrsta skallaboltann. Góður leiklestur hjá Bernardo [Silva] og góð afgreiðsla,“ sagði Slot. Næstum því orðnir vanir þessu „Við erum næstum því orðnir vanir því að fá á okkur mark í uppbótartíma, það gerðist aftur í dag,“ sagði Slot. „Þegar líður á leikinn vonast maður alltaf til að geta haldið orkunni gangandi og þá gera þeir stundum mistök. Við áttum góðan og áhrifamikinn seinni hálfleik en því miður fengum við ekki jákvæð úrslit,“ sagði Slot. Um rauða spjaldið á Szoboszlai: „Það er ekki atvikið sem við ættum að ræða. Kannski hefði hann átt að leyfa markinu að standa en ef þetta er reglan þá verðum við að sætta okkur við það,“ sagði Slot. Dómarar þurfa að sinna starfi sínu „Ef það er eitthvert atvik sem við ættum að ræða, þá er það þegar Mo Salah er einn á móti markverðinum. Allir sem hafa komið á þennan völl síðustu sjö eða átta ár vita að það er mark hjá Salah. Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil. Dómarar þurfa að sinna starfi sínu,“ sagði Slot en dómarinn dæmdi aukaspyrnu og bara gult spjald fór á loft. Geturðu Arne Slot litið á þennan leik á jákvæðan hátt? „Auðvitað. Í seinni hálfleik pressuðum við mjög hátt og spiluðum góðan fótbolta. Það er ekki hægt að bera þennan leik saman við leikinn fyrir þremur eða fjórum mánuðum, við höfum bætt okkur svo mikið – en við þurfum að bæta úrslitin. Svo oft á þessu ári höfum við ekki fengið það sem mér finnst við eiga skilið og þetta er enn eitt dæmið um það,“ sagði Slot.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira