Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson skrifar 10. febrúar 2026 08:00 Flokksþing elsta stjórnmálaflokks landsins, Framsóknarflokksins, fer fram um helgina hér í Reykjavík. Þar kemur Framsóknarfólk saman til að móta stefnu flokksins og velja leiðtoga flokksins inn í framtíðina. Tveir öflugir frambjóðendur sækjast eftir formannsembættinu.Það er óhætt að segja að Framsóknarfólk standi frammi fyrir sannkölluðu lúxusvandamáli að þurfa að velja á milli tveggja jafn frambærilegra leiðtoga. Frá því ég fékk kosningarétt hef ég alltaf kosið með hjartanu. Ég hef kosið fólk sem ég treysti til að standa við orð sín. Stundum hefur það gengið eftir, stundum ekki. Ég segi þetta alveg án gríns. Ég held að ég hafi kosið alla flokka nema Samfylkinguna, Miðflokkinn, Flokk fólksins og Viðreisn. Ég hef kosið Alþýðubandalagið, Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn, Pírata og náði meira að segja að kjósa Kvennalistann! Árið 2019 átti ég fund með Lilju Dögg Alfreðsdóttur í kjölfar þess að ég hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir verkefnið Hjólakraftur í Norðlingaskóla, sem ég stóð að. Lilja sýndi verkefninu mikinn áhuga, spurði gagnrýninna spurninga og vildi vita meira. Hún minntist á mögulegt framboð síðar meir, en á þeim tímapunkti hafði ég lítinn sem engan áhuga á slíku. Við héldum þó áfram í reglulegu sambandi. Fyrir kosningarnar 2021 hafði Lilja aftur samband og vildi fá mig á lista Framsóknar. Þá var vinna Ásmundar Einars Daðasonar við frumvarp að farsældarlögunum, með aðkomu allra stjórnmálaflokka, fagfólks og hagsmunaaðila, komin vel á veg. Mér fannst Framsóknarflokkurinn, með þetta kraftmikla fólk innanborðs, eiga að leiða samfélagið áfram. Ég sló því til. Mig langaði ekki aðeins að kjósa Framsókn. Ég vildi vinna með Lilju að því að koma hennar málum á dagskrá og keyra þau áfram. Ég fann að í Framsókn átti ég loks pólitískan samastað. Í framhaldi af kosningunum 2021 vildi ég prófa að starfa meira að málefnum nærsamfélagsins í Reykjavík. Lilja hvatti mig til að gefa kost á mér fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2022. Þar unnum við stærsta sigur Framsóknar í Reykjavík í sögu flokksins og náðum að snúa 16 milljarða halla borgarinnar í 5 milljarða afgang! En það er þó ekki umfjöllunarefni hér. Lilja Dögg Alfreðsdóttir er Framsókn. Hún þekkir sögu flokksins betur en flestir og hefur tekið þátt í starfi hans frá barnæsku í Breiðholtinu. Hún aðhyllist samvinnustefnuna af heilum hug og trúir því að betri lausnir verði til þegar fólk vinnur saman frekar en að vaða áfram eitt og sér. Hún er afar sterk í efnahagsmálum og sér oft lengra en augað eygir, ekki síst á síðasta ári, þar sem hún hefur ítrekað bent á hvað er yfirvofandi. Það kemur ekki á óvart. Lilja þekkir hagkerfi heimsins eins og lófann á sér. Lilja býr að mínu mati yfir meiri „hestöflum“ en flestir stjórnmálamenn. Hún stendur föst fyrir, lætur ekki slá sig út af laginu, er sáttfús, jákvæð og fagleg. Kannski er besta dæmið um það hvernig hún lét drykkjuraus Klaustursmálsins ekki standa í vegi fyrir faglegu samstarfi í þinginu við þá sem þar áttu hlut að máli, þrátt fyrir að það hafi gengið nærri okkur öllum og einna helst tekið á hana. Ég hlakka til sunnudagsins. Þá fæ ég tækifæri til að kjósa Lilju Dögg Alfreðsdóttur sem næsta formann Framsóknarflokksins. Það tækifæri ætla ég að nýta stoltur og ég hlakka til að vinna með Lilju að undirbúningi sveitarstjórnarkosninganna í vor! Það er akkur fyrir Framsókn að hafa Lilju í sínu liði. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar og í framboði á lista Framsóknar til borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Daníelsson Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar