Mætt í fyrsta sinn til Evrópu og klár í erfiða áskorun með Blikum í dag Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 09:08 Katie Duong er mætt með Breiðabliki til Svíþjóðar í sannkallaðan stórleik. Skjáskot/Breiðablik Íslandsmeistarar Breiðabliks í fótbolta kvenna eru á spennandi slóðum því liðið spilar í dag í 8-liða úrslitum Evrópubikars UEFA, gegn Svíþjóðarmeisturum Häcken á útivelli. Nýr leikmaður Blika er að kynnast Evrópu í fyrsta sinn.
Bandaríski miðjumaðurinn Katie Duong er ein þeirra sem Breiðablik hefur sótt til að bregðast við þeim mikla fjölda sem félagið hefur misst frá því að það varð Íslandsmeistari í haust. Þessi 24 ára gamli leikmaður er á ókunnum slóðum því hún er nú í Evrópu í fyrsta sinn. „Þetta er búið að vera stórkostlegt hingað til. Allir hafa tekið súper vel á móti mér. Ég elska liðið og þjálfarana. Allt hefur verið frábært,“ segir Duong um fyrstu kynni sín af Breiðabliki, í stuttu viðtali á samfélagsmiðlum félagsins. „Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast. Ég hef aldrei komið til Evrópu og hafði því ekki neinar ákveðnar væntingar. Ég hef heyrt virkilega góða hluti um Ísland og kynnst því hingað til hversu fallegt land þetta er,“ segir Duong sem nú getur hakað við að hafa komið til tveggja Evrópulanda, því leikurinn í dag fer fram í Svíþjóð: „Þetta er búið að vera þvílíkt svalt. Það mesta sem ég hef séð af Evrópu alla mína ævi.“ Eins og fyrr segir er Häcken ríkjandi Svíþjóðarmeistari og ljóst að Blikar eiga fyrir höndum afar krefjandi einvígi, eftir að hafa komist í 8-liða úrslitin með því að slá út Danmerkurmeistarana. „Þetta verður svo sannarlega mikil áskorun. Við höfum skoðað myndefni og þetta er algjört gæðalið en frá því að ég kom hingað höfum við virkað beittar og undirbúið okkur, svo ég er spennt fyrir leiknum,“ segir Duong. Leikur Häcken og Breiðabliks í dag hefst klukkan 17:30 en liðin mætast svo á Íslandi á miðvikudaginn eftir viku.
Breiðablik Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira