Upgjörið: Grindavík - Valur 66-89| Valur fór afar illa með Grindavík Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 11. febrúar 2026 21:25 vísir/Anton Grindavík tók á móti Val í HS Orku-höllinni í kvöld þegar 17. umferð Bónus deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Leikurinn verður seint talinn hafa verið jafn og spennandi en lið Vals valtaði yfir Grindavík 66-89. Leikurinn fór vel af stað og opnuðu bæði lið á góðum þriggja stiga körfum. Leikurinn var nokkuð jafn fyrst um sinn en eftir því sem leið á leikhlutann byrjaði Valur að stinga af. Hvort tapið í bikarúrslitum hafi enn verið í huga Grindavíkur skal ósagt látið en þær voru ekki líkar sjálfum sér. Valur leiddi þægilega eftir fyrsta leikhluta 15-29. Vont varð verra fyrir Grindavík í öðrum leikhluta sem virtust örlítið missa einbeitingu og Valur refsaði grimmilega og bætti vel við forskot sitt. Þegar Grindavík náði svo stoppum varnarlega náðu þær ekki að refsa til baka sóknarlega. Valur var að hitta frábærlega fyrir aftan þriggja stiga línuna og voru 11/19 (57%) eftir fyrri hálfleik á móti 4/14 (28%) hjá Grindavík. Valur fór með afgerandi forystu inn í hálfleikinn og leiddi með 21 stigi 31-52. Seinni hálfleikur opnaði með þriggja stiga körfu frá Val sem hélt áfram að vera á eldi fyrir aftan þriggja stiga línuna. Grindavík sýndi smá kraft þegar Abby Beeman kom með tvær snöggar kröfur fyrir þær gulklæddu sem gaf smá von um að það væri mögulega að kvikna undir Grindavík en sú von varð fljótt að engu þar sem Valur hélt áfram að setja stóru skotin. Helsta spenna leikhlutans snérist um hvort Grindavík næði að koma muninum niður fyrir tuttugu stig. Það var þristur lengst utan af golfi frá Abby Beeman sem tryggði það að Grindavík fór inn í fjórða leikhluta nítján stigum á eftir Val 54-73. Það vissu allir í hvað stefndi í fjórða leikhluta og hver útkoman yrði. Valur hélt áfram að bæta við stigum á töfluna á meðan bekkurinn hjá þeim kallaði inn á völlinn að ekki stoppa. Valur fór að lokum með 23 stiga stórsigur af hólmi 66-89. Atvik leiksins Erfitt að nefna eitthvað eitt atriði. Var að bíða eftir einhverju atriði allan leikinn sem skar sig úr en mér fannst það þó ekki koma. Valur voru með yfirhöndina allan leikinn og kláraði þetta fagmannlega. Stjörnur og skúrkarÞetta var mikil liðs frammistaða að mínu mati hjá Val í kvöld. Alyssa Cerino, Reshawna Rose og Dagbjört Dögg Karlsdóttir voru stigahæstar í liði Vals en það væri í raun hægt að nefna eitthvað frá þeim öllum.Hjá Grindavík var Abby Beeman að reyna draga vagninn sem var í handbremsu og brekku. Abby var stigahæst á vellinum með 25 stig.DómararnirSigmundur Már, Davíð Kristján og Einar Valur voru á flautunni í kvöld. Heilt yfir fannst mér þeir komast bara vel frá sínu. Auðvitað eitt og annað sem hægt væri að pikka út en ekkert sem hafði nein áhrif.Stemingin og umgjörðHefði verið skemmtilegt að sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem mættu í HS Orku-höllina. Valur sýndi snemma hvað væri í vændum og stemningin svolítið eftir því. Umgjörð og annað er þó líkt og alltaf upp á 10,5 hér í Grindavík!ViðtölJamil Abiad er þjálfari ValsVísir/Pawel„Þær spiluðu næstum því fullkominn leik“„Fullkomið? Langt því frá“ sagði Jamil Abiad þjálfari Vals þrátt fyrir 23 stiga sigur í kvöld.„Ég er mjög kröfuharður með þessa hluti. Við spiluðum af ákefð og við fylgdum plani mest allan leikinn. Það eru enn hlutir sem við verðum að bæta okkur í en aftur þá er ég fullkomnunarsinni. Ég er ángæður með framlagið og stelpurnar spiluðu vel saman. Þær spiluðu næstum því fullkominn leik en það eru enn hlutir sem hægt er að gera“Varnarleikur Vals var mjög góður í kvöld og þær héldu Grindavík í 66 stigum.„Við héldum þeim í 66 stigum svo vörnin var mjög góð lengst af leiknum. Mér fannst við stundum gefa frá okkur auðvelda hluti en við þurfum bara að skoða það. Þú spilar aldrei fullkominn körfuboltaleik, það er ómögulegt en við vorum eins nálægt fullkomnum leik og við komumst“ sagði Jamil Abiad.Anton Brink„Mjög lélegt og bara ömurlegt“„Þetta var mjög lélegt og bara ömurlegt“ sagði Þorleifur Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið í kvöld.„Við mættum ekki tilbúnar og í raun bara frá upphafi“Valur var að skjóta mjög vel fyrir aftan þriggja stiga línuna en Þorleifur var þó svekktastur með varnarleikinn í sínu liði.„Já klárlega en það er ekkert erfitt að skora mikið þegar að vörnin er ekki til staðar. Þetta var bara galopið og þær eru góðar að skjóta. Þær æfa körfubolta á hverjum degi svo bara vel gert“Aðspurður um hvort það væri eitthvað jákvætt sem hægt væri að taka úr þessum leik fannst Þorleifi sitt lið þó allavega vera að reyna.„Mér finnst við alltaf vera að reyna. Mér finnst það svolítið fallegt varðandi mitt lið“„Undir restina að berjast um einhver fráköst og svoleiðis. Ég hef alltaf geta tekið það út en það er alls ekki nóg. Það er kannski aðalega það“ sagði Þorleifur Ólafsson Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Valur