Enski boltinn

Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hannibal Mejbri minnkaði muninn fyrir Burnley og fleiri mörk fylgdu strax í kjölfarið.
Hannibal Mejbri minnkaði muninn fyrir Burnley og fleiri mörk fylgdu strax í kjölfarið. Luke Hales/Getty Images

Burnley sótti hádramatískan 3-2 sigur gegn Crystal Palace en öll fimm mörkin í fyrri hálfleik. Aston Villa þurfti að bíða mun lengur en uppskar mark undir lok leiks og fagnaði 1-0 sigri gegn Brighton. Nottingham Forest og Wolves gerðu markalaust jafntefli.

Crystal Palace - Burnley 2-3

Burnley lenti tveimur mörkum undir eftir rétt rúman hálftíma á Selhurst Park. Jörgen Strand-Larsen þakkaði traustið í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og skoraði bæði mörkin.

Þrátt fyrir það tókst Burnley að snúa leiknum og taka 3-2 forystu áður en fyrri hálfleik lauk. Hannibal Mejbri minnkaði muninn, Jaidon Anthony jafnaði og Jefferson Lerma setti boltann síðan óvart í eigið net.

Burnley stóð síðan af sér áhlaup Crystal Palace í upphafi seinni hálfleiks og undir lok leiksins. Markmaðurinn Martin Dubravka tryggði Burnley sigurinn með magnaðri vörslu í uppbótartíma eftir skot Ismaila Sarr af stuttu færi.

Sigurinn var gríðarmikilvægur fyrir Burnley, sem er í 19. sæti deildarinnar, nú níu stigum frá öruggu sæti.

Aston Villa - Brighton 1-0

Aston Villa - Brighton 1-0

Fátt var um færi í fyrri hálfleik en bæði lið mættu beittari til leiks í seinni hálfleik.

Brighton veitti fyrsta höggið þegar vinstri bakvörðurinn Ferdi Kardioglu skaut skoti sem var varið í stöngina. Ezri Konsa og Morgan Rogers svöruðu með fínum marktilraunum fyrir Aston Villa skömmu síðar.

Staðan hélst þó markalaus alveg fram á 86. mínútu þegar Tyrone Mings skallaði boltanum í Jack Hinselwood og þaðan í netið.

Aston Villa styrkti stöðu sína í 3. sæti deildarinnar með þessum sigri og situr nú þremur stigum frá Manchester City en sex stigum frá Arsenal sem á leik til góða.

Nottingham Forest - Wolves 0-0

Heimamenn í Skírisskógi voru mun hættulegri en botnliðið sem heimsótti þá, en tókst ekki að skora.

Lorenzo Lucca þreytti frumraun sína fyrir Forest og fór illa með algjört dauðafæri, þegar fimm Forest leikmenn sóttu á aðeins einn varnarmann Wolves.

Varamaðurinn Igor Jesus fór ekki betur með sín færi þegar hann kom inn á í seinni hálfleik og markalaust jafntefli varð niðurstaðan.

Wolves er í langneðsta sæti deildarinnar en Forest er í 17. sætinu, þremur stigum fyrir ofan West Ham og níu stigum fyrir ofan Burnley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×