Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Stefán Árni Pálsson skrifar 12. febrúar 2026 11:02 Ásta hafði mikinn húmor fyrir sjálfri sér á Eddunni á sínum tíma. Við Íslendingar erum svo sannarlega rík þegar það kemur að hæfileikaríku listafólki sem hefur gert það gott bæði innan og utan landsteinanna. Þrátt fyrir allt þetta flotta fólk í sviðsljósinu eigum við einnig miklar kempur á bak við tjöldin sem iðka sína list af mikilli nautn.
Ein af þeim er förðunar- og gervahönnuðurinn Ásta Hafþórsdóttir sem hefur unnið í ýmsum stórum verkefnum, kvikmyndum, þáttum og auglýsingum. Hún hefur gert ótrúlega hluti þar sem hún breytir ásýnd fólks sem flestir kannast við. Í gærkvöldi fengu áhorfendur Íslands í dag að kynnast þessari hæfileikaríku listakonu á meðan hún umbreytir Tómasi Arnar fréttamanni úr sakleysislegum fjölmiðlamanni í vígalegan víking. Innslagið má sjá hér að ofan. Ásta sá lengi vel um gervi Stefán Karls sem glanni glæpur. Ferill Ástu hefst á því að hún drífur sig í nám í Svíþjóð eftir að tvær miklar kempur í faginu, þær Ragna Fossberg og Guðrún Þorvarðardóttir, hvöttu hana til að sækja um. Ásta hefur í gegnum tíðina mikið til unnið erlendis og komið að stórum verkefnum þar. En stuttu eftir heimkomu fór hún að vinna að myndinni Snertingu. Frábært fyrsta verk eftir heimkomu „Ég var boðuð á fund með Baltasar og hann spurði hvort við ættum ekki að vinna saman. Hann var mjög til í það, þannig að það var bara alveg frábært svona fyrsta verkefni eftir heimkomu, bara af því að, þú veist, þetta, þetta var svo fallegt verkefni,“ segir Ásta en Egill Ólafsson varð að sitja í stólnum hjá Ástu í klukkustund á hverjum tökudegi meðan hún vann að gervinu. „Að leyfa Agli að vera með hár. Það er svo gott fyrir hann að fara úr sjálfum sér inn í einhvern annan. Þetta er svona svolítið eins og gömlu grísku harmleikirnir, þá voru þeir með grímur og þá fóru þeir úr sjálfum sér og inn í grímuna. Þetta er bara nákvæmlega sami hlutur þó að þú sért bara með hárkollu eða nef eða hvað það er. Þú ert að fara inn í eitthvað.“ Það var einmitt fyrir Snertingu sem Ásta vann sín önnur Edduverðlaun en hún nýtti þakkarræðuna á óhefðbundinn máta. Hún var í leit að kærasta í ræðunni. En fékk hún mikil viðbrögð við ræðunni? Sjá einnig: Vann Eddu og auglýsti eftir kærasta „Já, svona kannski fyrstu sólarhringana þá spurði ég sjálfan mig bara hvaða vesen ég væri búin að koma mér í. Hvort ég gæti ekki bara verið svona venjuleg og eðlileg eins og aðrir og þakkað bara fyrir mig. Mér fannst þetta eiginlega svolítið bara húmor í þessu,“ segir Ásta sem fékk mörg skilaboð eftir ræðuna.
Ísland í dag Leikhús Bíó og sjónvarp Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira