Mannfjandsamleg stefna á bráðamóttökunni Rósa Guðbjartsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 13:48 Ástandið á bráðamóttöku Landspítalans er óboðlegt og hefur verið lengi. Forstjórar LSH koma og fara en enginn þeirra virðist ráða við að skipuleggja bráðamóttöku svo sómi sé að. Aðstæður þar eru óásættanlegar bæði fyrir starfsmenn og sjúklinga. Engu virðist breyta hve miklu fé er varið til spítalans, ekkert lagast og raunar versnar ástandið frekar ef eitthvað er. Á bráðamóttökunni er öllu grautað saman. Einstaklingur með smávægilega áverka mætir á sömu móttöku og annar sem er í bráðri lífshættu vegna slyss eða skyndilegs sjúkdóms. Starfsfólkið þarf að sinna öllum á sama tíma. Það hljóta alllir að sjá að einstaklingur með til dæmis einkenni hjartaáfalls á ekki að vera í sömu biðröð og sá sem fingurbrotnaði eða er með með lítilsháttar áverka. Það er með ólíkindum að þetta skuli hafa viðgengist á bráðamóttökunni í öll þessi ár. Þar ríkir oft einhvers konar stríðsástand. Gríðarlegt álag er á starfsfólkinu og plássleysið algjört. Margir upplifa niðurlægjandi aðstæður liggjandi frami á gangi, fyrir augliti allra sem þar fara um, því að ekki eru nein laus rúm á sjúkrastofum. Þá þurfa sumir að bíða lon og don eftir þjónustu, oft klukkustundum saman. Margir eru með mjög erfiðar reynslusögur í farteskinu tengdar því álagi sem ríkir á bráðamóttökunni. Fullreynt að ríkið sjái alfarið um bráðamóttöku Það er brýnt að brjóta upp þessa einingu Landspítalans. Búa þar til smærri einingar sem geta tekið álagið af Landspítalanum. Þannig má auðveldlega sjá fyrir sér einkarekna þjónustu sem sinnir fólki með minniháttar áverka eða slys. Þá er komið að því að útvista slíkum rekstri til sjálfstætt starfandi aðila í heilbrigðisþjónustu. Slíkt fyrirkomulag þekkist víða erlendis. Raunar erum við Íslendingar miklir eftirbátar frænda okkar á Norðurlöndunum, þar sem ríkið gnæfir ekki yfir nær allri sjúkraþjónustu eins og hér á landi. Margir Íslendingar nýta sér þjónustu einkarekinna sjúkrastofnana erlendis. Við erum öll sjúkratryggð og því á ekki að skipta máli hvort að það sé ríkisstarfsmaður eða einkaaðili sem veitir heilbrigðisþjónustuna, eins og á bráðamóttöku, hérlendis eða erlendis. Sýnum mannúð og virðingu Það er fullreynt að Landspítalinn sjái alfarið um bráðamóttöku. Stofnunin ræður ekki við verkefnið. Mikilvægt er að bregðast við þessum vanda sem allra fyrst. Ekki með fleiri orðum heldur aðgerðum. Það þarf framsýni, vilja og metnað í þessum málum. Þannig getum við sýnt sjúku og slösuðu fólki meiri mannúð og virðingu. Ég mun á næstunni setja þetta mál á dagskrá Alþingis. Nóg er komið af tali og afsökunum. Þennan vanda þarf að leysa. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Guðbjartsdóttir Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar