Við styðjum kollega okkar á bráðamóttöku Landspítalans! Guðrún Árný Guðmundsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 13:31 Þetta ástand er óviðunandi og getur ekki haldið áfram lengur. Við höfum verið á hæsta stigi viðbúnaðar svo mánuðum skipti með yfirlögnum á öllum legudeildum spítalans. Með yfirlögnum er átt við að fleiri sjúklingar dvelja á deildum en gert er ráð fyrir vegna húsnæðis og mönnunar heilbrigðisstarfsmanna. Að auki hefur viðbúnaðarstigið verið hækkað umfram hæsta stigið (er það hægt?) og fleiri sjúklingar voru lagðir inn á yfirfullar legudeildir. Sjúklingar dvelja á göngum legudeilda svo dögum skiptir og einbýlum er breytt í tvíbýli. Sjúklingar nýkomnir frá gjörgæslu, mikið veikir einstaklingar í ýmis konar vélum, nýgreindir með banvænt krabbamein eða í miklu óráði eða vanlíðan þurfa að dvelja á tvíbýli eða fjölbýli þrátt fyrir að þörfin fyrir einbýli og næði sé gífurleg. Þetta hefur mikil áhrif á þróun veikindanna og möguleika til bata fyrir þessa einstaklinga. Í þessum þrengslum og álagi eru litlir möguleikar til þjálfunar eða aðstoð til að komast til baka til venjulegs lífs. Innan um bráðveikt fólk í ýmis konar ástandi dvelja aldraðir einstaklingar, ömmur, afar, langömmur og langafar okkar allra, sem vegna hrumleika geta ekki lengur búið sjálfstæðri búsetu. Þetta er fólkið sem hefur skilað sínu til samfélagsins og á rétt á að við hugsum um þau og stöndum með þeim til að tryggja þeim umönnun og öryggi. Fjöldinn af einstaklingum sem ættu að eyða ævikvöldinu og síðustu dögunum, mánuðunum eða árunum í öryggi og hlýju umhverfi dvelja á bráðamóttökunni og svo á bráðalegudeildum vikum og mánuðum saman. Það er ekki boðlegt lengur. Eins er fjöldinn allur af einstaklingum að bíða eftir endurhæfingarúrræðum, til að geta bjargað sér betur og komist heim aftur en biðin er svo löng að sumir hverjir missa af tækifærinu og komast ekkert heim. Margir þessara einstaklinga gætu líka verið lengur heima með meiri stuðningi og aðstoð, en þegar leitað er til heilsugæslunnar eftir aukinni aðstoð heim þá komum við að lokuðum dyrum. Ekki er í boði að fá meiri aðstoð. Við sem störfum á bráðalegudeildum Landspítalans styðjum starfsfólk bráðamóttökunnar og höfum miklar áhyggjur af þessu mikla álagi og slæmum starfsaðstæðum sem starfsfólk þarf að upplifa. Við á legudeildum upplifum einnig gífurlegt álag með allt of marga sjúklinga miðað við þá mönnun sem við höfum. Endalausar aukavaktir og veikindahlutfall allt of hátt. Okkur svíður að geta ekki sinnt sjúklingunum okkar betur í átt til bata vegna álags og skorts á aðstöðu og tíma. Það er sárt að vita af okkar sjúklingum bíða svo dögum skiptir á bráðamóttökunni í óviðunandi aðstæðum eftir að komast í sérhæfða meðferð á viðeigandi legudeild. Við vitum öll vel hvað þessi bið getur haft slæm áhrif á meðferð og bata sjúklinganna, þrátt fyrir að starfsfólk bráðamóttökunnar sé að gera sitt besta í hræðilegum aðstæðum. Stjórnvöld verða að opna augun fyrir vandanum og grípa til aðgerða. Núna! Margoft hefur verið bent á að þetta gæti gerst með spám um fólksfjölgun og sér í lagi fjölgun aldraðra. Við, heilbrigðisstarfsfólk erum búin að horfa á þessa þróun í marga, marga mánuði og höfum beðið vongóð eftir að gripið sé til aðgerða og fundnar lausnir. En nú er komið miklu meira en nóg! Höfundur er hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á bráðalegudeild Landspítalans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar