Þjóð að þyngjast – Fjárhagslega óhagkvæmt að fjárfesta ekki í heilsutengdum forvörnum Janus Guðlaugsson skrifar 16. febrúar 2026 17:00 Íslendingar búa við öflugt heilbrigðiskerfi þar sem áskoranir eru margar. Norrænar niðurstöður frá árinu 2024 sýna að Ísland trónir nú á toppi Norðurlandaþjóða hvað varðar hlutfall fullorðinna með yfirþyngd eða offitu. Um það bil 7 af hverjum 10 fullorðnum Íslendingum eru annað hvort of þungir eða með offitu. Hér er ekki aðeins um vandamál að ræða sem nær til tölfræðilegra skilgreininga heldur það sem mun alvarlegra er, þessi staða hækkar líkur á langvinnum sjúkdómum á næstu árum meðal landsmanna. Langvinnir sjúkdómar sem eru tengdir lífsstíl, draga úr lífsgæðum, auka álag á heilbrigðiskerfið og hækka verulega kostnað þess til lengri tíma. Hver gæti ástæða þessa vanda verið? Sannleikurinn er í raun sára einfaldur; hið opinbera, bæði sveitarfélög og ekki síst ríkið hafa mátt sín lítils gagnvart markaðsöflum tengdum fæðuframboði, áfengi og nikotínvörum. Að fjárfesta af meiri krafti í gagnreyndum heilsutengdum forvörnum er lykilatriði. Greiningar sýna að aðeins lítill hluti af heildarútgjöldum til heilbrigðismála hefur farið í fyrirbyggjandi heilsutengdar aðgerðir eða aðeins um 2,1% samkvæmt skýrlum OECD. Þetta hlutfall á Íslandi er talsvart lægra en hjá hinum Norðurlöndunum og mun lægra en meðaltal OECD-ríkja, sem er um 3,4% samkvæmt nýjum gögnum (Health at a Glance, 2025). Þær lausnir sem ríkisstjórnir undanfarinna ára hafa boðið upp á í nafni heilbrigðiskerfisins og ráðherrum heilbrigðismála hafa geinilega ekki náð í gegn. Lausn á þessum vanda er gagnreynd fjölþætt heilsuefling fyrir alla aldurshópa þar sem stjórnvöld þurfa að auka fjármuni, m.a. í gegnum sveitarfélög, til forvarnastarfs. Það væri æskilegt að breyta skattlagningarleiðum til að draga úr aðgengi að sælgæti og sykruðum drykkjum, bæta skólamáltíðir og auka daglega hreyfingu innan skólakerfisins. Þá væri einnig æskilegt að bæta markvissa hvatningu og fræðslu um heilsu og hreyfingu, vinna með markvissa heilsuráðgjöf og heilsutengdar forvarnir á landsvísu sem ákveðna grunnþjónustu. Auk þess er æskilegt að auka ábyrgð vinnuveitenda og fyrirtækja á heilsu sinna starfsmanna í ljósi nýlegra staðreynda um að kostnaður vegna veikinda starfsmanna á vinnumarkaði nemur milljörðum króna, m.a. hjá Reykjavíkurborg og Landspítala. Fyrirbyggjandi heilsutengd þjónusta er fjárhagslega hagkvæm. Bresk rannsókn, Return on investment of pulbic health intervention: a systematc review frá árinu 2016, sýndi fram á að næringarfræðsla, skattlagning á sykraða drykki og heilsueflandi fjölþætt þjálfun, skilar samfélaginu til baka fjármunum í hlutfallinu 14,3 á móti 1 þar sem hagnaðurinn yrði allt að 17,5 á móti hverju pundi (krónu) sem fjárfest er fyrir. Í upphafi nýs árs er ágætur tími til að setjast niður og velta fyrir sér stefnu og markmiðum komandi árs. Þetta á ekki aðeins við um þá sem heima sitja og sinna illa daglegri hreyfingu, heldur á þetta einnig erindi til þeirra sem með embætti stjórnsýslunnar fara, sveitarstjórnarfólk, alþingismenn og ráðherrar ríkisstjórnar. Heilbrigðisráðherra, atvinnuvegaráðherra og félagsmálaráðherra í umboði forsætisráðherra eru sérstaklega hvattir til að draga fram í dagsljósið kröftugri stuðning við gagnreyndar heilsutengdar forvarnarnir með auknu fjármagni og leiðum, bretta upp ermar og láta verkin tala. Framkvæmdaferli og lausnir, gagnreyndar aðferðir sem hafa verið teknar æut með nálarauga háskólasamfélagsins á sviði heilsutengdra forvarna, eru til staðar í landinu. Þessar aðferðir hafa eki verið virkjaðar sem einhverju nemi af okkar ágætu ráðherrum á undanförnum árum. Gangi okkur vel í að styrkjast, þá bæði léttumst við á sál og líkama og lífsgæðin aukast. Höfundur er með doktorspróf í íþótta- og heilsufræðum og hefur sinnt gagnreyndum heilsutengdum forvörnum hjá Janus heilsueflingu í 10 ár en þar áður sem kennari og fræðimaður við Háskóla Íslands. Heimildir: Normo, Nordic Monitoring 2014-2024; Nordic Council of Ministers; 2025 State of Health in the EU – Iceland – Country Health Profile 2023, OECD; 2023 Health at a Glance 2023, OECD; 2023 Return on investment of public health interventions: a systematic review; Rebecca Masters, Elspeth Anwar, Brendan Collins, Richard Cookson, Simon Capewell; 2016 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar