Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 19:54 Elísa Viðarsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Blika og það var ekkert smámark. Hér fagna liðsfélagar hennar með henni eftir markið. Víisr/Anton Breiðablik er úr leik í Evrópubikar kvenna í fótbolta eftir þriggja marka tap í seinni leiknum á móti Svíþjóðarmeisturum Häcken, 4-1, á Kópavogsvellinum í kvöld.
Häcken vann fyrri leikinn 7-0 og var því komið áfram í raunheimum en þessi seinni leikur snérist því meira um heiðurinn og samkeppnishæfni Íslandsmeistaranna. Blikar hafa misst marga leikmenn í vetur, alla sókndjörfustu leikmennina og klettinn inni á miðjunni svo eitthvað sé nefnt. Það er ljóst að sá missir þýddi að Blikarnir áttu enga möguleika í þessu einvígi á móti Häcken. 4-1 tap þýðir að Blikar töpuðu 11-1 samanlagt. Häcken tryggði sér leiki á móti Eintracht Frankfurt í undanúrslitum keppninnar. Thelma Karen Pálmadóttir á ferðinni í leiknum í kvöld.Vísir/Anton Tvær íslenskar landsliðskonur voru í byrjunarliði Häcken eins og í fyrri leiknum. Fanney Inga Birkisdóttir stóð í markinu og Thelma Karen Pálmadóttir var úti á hægri kanti. Thelma Karen fór út af í hálfleik en hafði skapað nokkrum sinnum hættu í fyrri hálfleiknum. Paulina Nyström var búin að koma Häcken í 1-0 strax með hniðmiðuðu skoti fyrir utan teig á annarri mínútu leiksins og það stefndi því í annað hryllingskvöld. Miðvörðurinn Emma Östlund skoraði annað markið á 18. mínútu eftir hornspyrnu frá Tabby Tindell. Blikar minnkuðu muninn í seinni hálfleik með frábæru marki frá Elísu Viðarsdóttur. Hún fékk þá boltann frá Edith Kristínu Kristjánsdóttur og lét vaða. Boltinn fór beint upp í fjærhornið, óverjandi fyrir Fanneyju Ingu í marki Häcken. Sænska liðið svaraði með flottu skoti þegar bakvörðurinn Alva Selerud lét vaða og skoraði flott mark. Fjórum mínútum síðar var staðan orðin 4-1 eftir annað skot rétt utan vítateigs, nú frá Monicu Jusu Bah. Vísir/Anton
Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino kom út af neyðarfundinum með afsökunarbeiðni og hótun „Það er skellur“ FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Sjá meira