Fabrégas reif í treyju leikmanns en Allegri fékk rautt spjald Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. febrúar 2026 07:36 Massimilano Allegri hellti sér yfir Cesc Fabrégas og dómara leiksins þegar sá síðarnefndi reif í treyju Alexis Saelemaekers. Claudio Villa/AC Milan via Getty Images Allt sauð upp úr í 1-1 jafntefli AC Milan og Como í gærkvöldi þegar þjálfarinn Cesc Fábregas reif í treyju hjá leikmanni AC Milan meðan leikurinn var enn í gangi.
Atvikið er með því furðulegra sem sést hefur í boltanum. Leikmenn Como unnu boltann af Alexis Saelemaekers úti við hliðarlínu á vallarhelmingi AC Milan og voru að bruna í sókn. Saelemaekers ætlaði að elta til baka en Fabrégas tosaði í treyjuna til að hægja á honum, eins og sjá má eftir tæplega eina og hálfa mínútu í spilaranum hér fyrir neðan. Þjálfari AC Milan, Massimiliano Allegri, gjörsamlega sturlaðist af reiði og var rekinn út af með rautt spjald. Málinu linnti þó ekki þá því Fabrégas og Allegri eru sagðar hafa átt í hörðum orðaskiptum í leikmannagöngunum eftir leik. Allegri lét síðan skotin fljúga á blaðamannafundi en Fabrégas baðst afsökunar. „Næst þegar einhver er að sleppa inn fyrir vörnina hjá okkur þá skriðtækla ég hann bara“ sagði Allegri meðal annars. „Ég biðst afsökunar. Þetta var bara smá snerting og Allegri brást allt of hart við, en ég hefði aldrei átt að gera þetta. Þetta var óíþróttamannsleg hegðun af minni hálfu. Eins og Cristian Chivu [þjálfari Inter] sagði um daginn, verðum við þjálfarar að halda höndum að okkur. Ég hefði orðið brjálaður líka, þannig að ég get bara beðist afsökunar og vonað að þetta muni aldrei aftur gerast á mínum ferli“ sagði Fabrégas. AC Milan er í öðru sæti ítölsku deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Inter. Como er hins vegar í 6. sætinu og er að dragast aftur úr baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Sjá meira