Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni Sindri Sverrisson skrifar 19. febrúar 2026 15:00 Eva Ýr Helgadóttir varði mark Víkings á síðustu leiktíð en reiknar ekki með að spila í sumar. vísir/Diego Eva Ýr Helgadóttir brást vel við þegar Breiðablik leitaði til hennar í markvarðakrísu fyrir Evrópuleikina við Svíþjóðarmeistara Häcken. Hún var mætt til Svíþjóðar og búin að hita upp þegar henni var svo óvænt tjáð að hún mætti ekki vera í leikmannahópnum.
Eva ákvað að taka Evrópuslaginn með Blikum, sem misst hafa markverði sína frá síðasta ári, en hún varði mark Víkings á síðustu leiktíð. Hún var því skráð í Víking og mistök við skiptin til Breiðabliks urðu til þess að hún varð að sitja í stúkunni gegn Häcken í síðustu viku. Sem betur fer, ef svo má segja, þá stóð þó ekki til að hún yrði aðalmarkvörður í leikjunum. Í búningnum og búin að hita upp „Það kom bara upp að félagaskiptin væru ekki komin í gegn. Það klúðraðist eitthvað einhvers staðar svo að ég var ekki lögleg,“ sagði Eva við Vísi og viðurkennir að það hafi verið ansi sérstakt að fá þessar fréttir rétt fyrir leik: „Já, ég bjóst nú ekki við þessu,“ sagði Eva létt. „Ég var búin að hita upp, komin í búninginn og var að fara að tylla mér á bekkinn. Þá er ég kölluð til hliðar og upplýst um þetta, og þurfti bara að tylla mér í stúkuna.“ En af hverju var Eva ólögleg? Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki, segir Blika hafa sent inn félagaskiptabeiðni til KSÍ 4. febrúar. KSÍ lagði svo blessun sína yfir Evrópuhópinn sem Breiðablik tilkynnti en átti þó enn eftir að ganga frá skiptunum svo Eva var enn skráð í Víking. Hún sat því í stúkunni í Svíþjóð en Eyjólfur segir að búið hafi verið að greiða úr málinu sama kvöld og því var hún svo sannarlega á bekknum í Kópavogi í gær. Tekur nú fjölskyldu og ferðalög fram yfir boltann Hin 18 ára Herdís Halla Guðbjartsdóttir stóð í marki Breiðabliks í báðum leikjunum við Häcken og slapp við meiðsli og rautt spjald, svo aldrei reyndi á að fylla þyrfti hennar skarð. Breiðablik tapaði hins vegar báðum leikjum stórt og einvíginu samtals 11-1, og fer því ekki í undanúrslit keppninnar. Evrópuleikirnir verði líklega síðasta verkefni Evu á hennar langa ferli, þar sem fyrsti leikur í efstu deild var með Fylki árið 2012. Hún hefur einnig leikið með ÍR, Aftureldingu, Selfossi og Smára en reiknar ekki með að spila í sumar: „Nei, það held ég nú ekki. Ég er komin með fjölskyldu og langar bara að ferðast frekar eða gera eitthvað annað í sumar.“
Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira