Formúla 1

„Stormur í vatns­glasi“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Toto Wolff gefur lítið fyrir ásakanir andstæðinga Mercedes. 
Toto Wolff gefur lítið fyrir ásakanir andstæðinga Mercedes.  Jakub Porzycki/NurPhoto via Getty Images

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, segir það vera „algjört kjaftæði“ að Mercedes sé viljandi að skauta framhjá reglunum fyrir komandi tímabil og lýsir málinu sem „stormi í vatnsglasi.“

Nýjar reglur taka í gildi á nýju tímabili í Formúlu 1 sem takmarka hversu miklu bensíni má hleypa inn áður en vélin brennur því.

Fjórir keppinautar Mercedes; Ferrari, Red Bull, Honda og Audi, halda því fram að Mercedes hafi hannað sína vél á lagalega gráu svæði.

Samkvæmt reglum eru skoðanir á vélunum gerðar þegar vélin er köld en keppinautar Mercedes halda því fram að þegar Mercedes vélin hitni hleypi hún meira af bensíni inn en leyfilegt er.

Þessar ásakanir leiddu til þess að alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) gaf út yfirlýsingu þar sem sagt var að reglum yrði ekki breytt áður en tímabilið hæfist, en kosning muni fara fram um það hvort breyta eigi reglunum á miðju tímabili og prófa vélarnar þegar þær eru í gangi.

Niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni munu liggja fyrir einhvern tímann á næstu tíu dögum en tímabilið í Formúlu 1 hefst sunnudaginn 8. mars í Ástralíu.

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, er sem fyrr segir ósammála því að Mercedes sé viljandi að skauta framhjá reglum. Hann er mótfallinn atkvæðagreiðslunni en mun samþykkja niðurstöðuna sem verður.

The Athletic og Sky Sports fjölluðu um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×