Upp­gjörið: Njarðvík-KR 92-105 | Skutu Njarðvíkinga í kaf

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Stjarnan mætti KR í bikarúrslitaleik Vís bikarsins í körfubolta. KR-ingar fögnuðu sigri.
Stjarnan mætti KR í bikarúrslitaleik Vís bikarsins í körfubolta. KR-ingar fögnuðu sigri. vísir/Anton

Bikarmeistarar KR héldu sigurgöngu sinni áfram í Njarðvík í kvöld með því að vinna þrettán stiga sigur á heimamönnum í Njarðvík, 105-92. 

Þetta var sjötti deildasigur KR og sá níundi í röð í öllum keppnum. Vesturbæjarliðið er sjóðandi þessa dagana og setti niður tuttugu þrista í kvöld.

Leikurinn fór fjörlega af stað og voru Njarðvíkingar fyrstir til að setja stig á töfluna. Leikurinn var jafn fyrstu mínútur en KR stakk fljótt af þegar þeir fóru að negla niður hverjum þristinum á fætur öðrum. Þeir enduðu leikhlutann með 8/11 (72%) nýtingu og voru nokkuð sannfærandi yfir 18-34.

Njarðvíkingar áttu í erfiðleikum með að halda í við góða hittni KR í fyrsta leikhluta en þeir byrjuðu annan leikhluta af krafti og náðu að saxa niður forskot Vesturbæinga jafnt og þétt eftir því sem leið á leikhlutann.

Njarðvík fékk tækifærin til þess að saxa forskotið enn frekar niður en skotin voru ekki að detta fyrir þá. KR setti stóru skotin sín og þar skildi á milli inn í hálfleik þegar KR fór með tíu stiga forystu inn í hlé 44-54.

Gestirnir úr Vesturbænum mættu öllu kraftmeiri út í seinni hálfleikinn og héldu áfram að reynast heimamönnum erfiðir fyrir aftan þriggja stiga línuna.

KR náði að keyra upp hraðann og spila sinn leik sem Njarðvíkingar áttu fá svör við. Nítján stig skildu liðin af fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 64-83.

Njarðvík mættu með krafti út í fjórða leikhluta og byrjuðu að saxa vel á forskot KR-inga. Þrátt fyrir hetjulega baráttu var brekkan bara orðin það brött og KR hélt leikinn út og fóru með þrettán stiga sigur 92-105.

Atvik leiksins 

Ég vill bara setja þriggja stiga nýtingu KR í fyrsta leikhluta hérna. Þeir voru á eldi og settu átta af ellefu þriggja stiga skotum sínum í fyrsta leikhluta sem lagði góðan grunn af þessum sigri.

Stjörnur og skúrkar

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson eða Tóti Túrbó eins og hann er einnig þekktur sem var frábær í liði KR í kvöld. Var stigahæstur í liði KR með 24 stig. Þetta var frábær liðs frammistaða hjá KR og margir sem lögðu vogar á skálarnar.

Dwyane Lautier-Ogunleye var að vanda öflugur í liði Njarðvíkur en hann endaði stigahæstur á vellinum með 31 stig.

Dómararnir

Kristinn Óskars, Gunnlaugur Briem og Sigurbaldur Frímannsson voru á flautunni í kvöld.

Ekki gallalaus frammistaða og Njarðvíkingum fannst á þá halla hér í kvöld. Læt það liggja milli hluta og ef þetta væri gamla einkunnakerfið þá myndi ég sleppa þeim með fimm.

Stemingin og umgjörð

Það var fínasta mæting og Njarðvíkingar reyndu að keyra upp stemningu með trommum og látum sem tókst bara þokkalega. Umgjörðin í IceMar-höllinni er svo alltaf til fyrirmyndar.

Viðtöl

Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR.vísir/Anton

„Við erum ennþá á uppleið“

„Byrjuðum mjög vel. Mikið og gott boltaflæði í sókninni og fengum fullt af opnum skotum“ sagði Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR eftir sigurinn í kvöld. 

„Við vorum að skjóta boltanum hrikalega vel frá þriggja stiga línunni. Augljóslega hélt það ekki út leikinn og við vorum níu af tólf eða eitthvað svona fáránlegt úr þriggja stiga skotum [í fyrsta leikhluta]“

„Mér fannst við byrja hrikalega vel og setja svolítið okkar hald á leikninn og ná að halda því í gegn“

„Sérstaklega í byrjun vorum við mjög aggresívir og góðir í fyrsta leikhluta. Náum að byggja upp svolítið forskot“

„Þegar þú spilar á móti Njarðvíkurliði sem eru fámennir og eru að spila á fáum mönnum og þeir þurfa að vera elta allan leikinn þá er það gríðarlega erfitt þannig það var mjög mikilvægt fyrir okkur að ná forskoti fljótt“

KR hafa nú unnið átta leiki í röð en þrátt fyrir það finnst Jakob Erni hans menn geta orðið betri.

„Okkur finnst við ennþá geta orðið betri. Mér finnst við ekkert vera að spila okkar besta leik endilega þótt við séum að ná í sigra. Það er margt sem að ætti að vera hverjandi fyrir okkur því að þú villt alltaf sem lið og bara sem einstaklingur líka ná að spila eins vel og þú getur og við erum ennþá á uppleið“ sagði Jakob Örn Sigurðarson.

Rúnar Ingi Erlingsson er þjálfari Njarðvíkinga.Vísir/Anton

„Þá klikkum við á sömu skotum og þeir voru að setja“

„Vonbrigði“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson svekktur eftir tapið gegn KR í kvöld. 

„Við erum of langt frá þeim lengstum af. Við náum aðeins þegar við förum í skipti vörnina þá sérstaklega með Milka á bekknum kannski þá var það fyrstu þrjá leikhlutana þá var það okkar eiginlega einu augnablik þar sem við vorum að ná að klukka þá“

„Í hinum varnarleiknum okkar þá vorum við bara alltaf of langt frá og þeir setja einhverja tuttugu þrista og eru að skjóta tæp 50% held ég og svo erum við að berjast við að komast inn í leikinn“

„Við vinnum annan leikhlutann og þeir eru með tíu stiga mun í hálfleik en þá hleypum við þeim aftur upp í þriðja þar sem við erum að gefa þeim þessi skot og svo förum við að taka þau í burtu og þá fara þeir að finna leiðir fyrir aftan okkur“

„Við áttum alveg séns til að koma okkur alveg inn í þetta en í öllum þeim sóknum þar sem við gátum sett þetta niður í kannski tveggja sókna leik þá klikkum við á sömu skotum og þeir voru að setja og það er svolítið saga leiksins“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira