Formúla 1

Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Síðasta tímabil var martröð að sögn Lewis Hamilton en hann er jákvæður fyrir tímabilið 2026 sem hefst eftir rúmar tvær vikur.
Síðasta tímabil var martröð að sögn Lewis Hamilton en hann er jákvæður fyrir tímabilið 2026 sem hefst eftir rúmar tvær vikur. getty/Joe Portlock

Lewis Hamilton kveðst fullur bjartsýni fyrir tímabilið 2026 í Formúlu 1 þrátt fyrir að síðasta tímabil hafi verið hans versta á ferlinum.

Sjöfaldi heimsmeistarinn Hamilton gekk í raðir Ferrari fyrir síðasta tímabil. Þar gekk allt á afturfótunum og í fyrsta sinn á ferlinum komst Hamilton ekki á verðlaunapall. 

Hann endaði í 6. sæti í keppni ökuþóra, einu sæti á eftir samherja sínum hjá Ferrari, Charles Leclerc. Breski ökuþórinn lýsti síðasta tímabili meðal annars sem martröð.

Þótt illa hafi gengið í fyrra liggur vel á Hamilton fyrir tímabilið 2026 sem hefst eftir hálfan mánuð.

„Ég hef gengið í gegnum ýmislegt og skilið við síðasta ár. Ég varði miklum tíma í að byggja mig upp í vetur og koma líkama og sál á betri stað. Það er langt síðan mér hefur liðið svona vel eftir að hafa endurskipulagt hlutina með liðinu mínu,“ sagði Hamilton en síðustu prófanir fyrir komandi tímabil fara fram í Barein í dag.

„Á síðasta ári var ég fastur í bíl sem ég fékk svo að segja í arf. En þetta er bíll sem ég hef átt þátt í að þróa undanfarna 8-10 mánuði, DNA-ið mitt er í honum og ég tengist honum betur.“

Hamilton sagðist jafnframt vera einbeittur fyrir framtíðina með Ferrari þrátt fyrir ófarir síðasta árs og hann hafi verið meðvitaður um að hann gæti þurft að sýna þolinmæði á meðan ítalski bílaframleiðandinn freistaði þess að komast aftur á toppinn.

Fyrsta keppni tímabilsins 2026 í Formúlu 1 fer fram í Melbourne í Ástralíu sunnudaginn 8. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×