Loforð eða árangur? Ýmir Örn Hafsteinsson skrifar 20. febrúar 2026 12:00 Á tímum þegar heilbrigðiskerfið er undir miklu álagi skiptir máli að leiðtogar hafi bæði skýra sýn og getu til að hrinda henni í framkvæmd. Þegar horft er til stöðunnar í dag verður myndin nokkuð skýr. Þrátt fyrir góða faglega þekkingu hefur Alma Möller ekki náð að sýna þá afgerandi forystu sem þörf er á við þessar aðstæður. Ástandið á bráðamóttöku Landspítalans er þungt, viðvarandi mönnunarvandi og loforð um umbætur skila sér illa eða of hægt. Þá hafa flóknar uppákomur eins og stuðningur við einstaklinga með POTS og sambærileg heilsufarsvandamál, varpað ljósi á skort á skýrri stefnu og samræmdri nálgun. Þetta eru áskoranir sem krefjast staðfestu, skýrleika og fumlausa ákvarðanatöku sem hefur sárlega vantað í ákvarðanatöku núverandi heilbrigðisráðherra. Ljóst er að stjórnun heilbrigðiskerfis snýst ekki aðeins um þekkingu, heldur um framkvæmd, forgangsröðun og kjark til að taka erfiðar ákvarðanir sem byggðar eru á staðreyndum og þörfum þeirra sem treysta á að örugg heilbrigðisþjónusta sé ekki háð geðþóttaákvörðunum einnar ríkisstjórnar. Á meðan sú forysta er óskýr, leyfi ég mér jafnframt að efast að hún sé yfir höfuð til staðar hjá núverandi ríkisstjórn, fólk bíður í óvissu eftir þjónustu sem það á rétt á. Reynslan sýnir okkur að önnur og skýrari nálgun er möguleg, en í tíð Willum Þór fyrrum heilbrigðisráðherra, sáum við árangur í málefnum heilbrigðiskerfisins. Hann hlustaði, leitaði leiða í samráði við alla þá sem að heilbrigðisþjónustu koma sem og þriðja geiranum. Skýrar ákvarðanir og árangur í hans tíð varpaði enn frekara ljósi á hversu miklu máli það skiptir að vinna markvisst að heildar uppbyggingu kerfisins. Undir hans forystu var lögð áhersla á að efla heilbrigðisþjónustu, bæta aðgengi og stytta biðtíma þar sem þörfin var mest. Hann setti jafnframt geðheilbrigðismál í forgang og studdi við heilbrigðisstarfsfólk sem er burðarás kerfisins, með því að leggja áherslu á betri starfsaðstæður. Með aukinni áherslu á forvarnir og lýðheilsu horfði hann til framtíðar og sjálfbærrar Þróunnar. Það sem aðgreinir þessa nálgun er skýrt: samvinna, raunhæfar lausnir og framkvæmdakraftur. Í stað þess að festast í orðum og vandamálum var unnið að aðgerðum sem skiluðu raunverulegum árangri. Þegar upp er staðið snýst þetta ekki um loforð eða fyrirætlanir, heldur um vinnusemi og árangur. Staða heilbrigðiskerfisins í dag sýnir að ríkisstjórnin hefur ekki náð að bregðast nægilega hratt við né ráðist í nægilega skýrar aðgerðir til að mæta þeim áskorunum sem við blasa. Þar ber Alma Möller ábyrgð sem heilbrigðisráðherra, enda krefst staðan ekki aðeins menntunar og þekkingu heldur skýrrar forystu og kraft til framkvæmda. Á sama tíma minnir reynslan okkur á að önnur og betri leið er til staðar. Í tíð Willum Þór Þórssonar sáum við hvað gerðist þegar forysta í málefnum heilbrigðisþjónustu hér á landi er markviss, lausnamiðuð og með fókus á það hvar þarfirnar liggja. Hlusta á það sem skiptir fólk raunverulega máli, bæði þeim sem veita þjónustuna sem og þeim sem þiggja hana. Það var raunverulega unnið að því að styrkja kerfið, bæta aðgengi og byggja upp gæði heilbrigðisþjónustunnar, en það er það sem fólk finnur fyrir. Fólk treystir ekki á stefnur og áætlanir heldur raunverulegar aðgerðir í málefnum heilbrigðiskerfisins. Höfundur er viðburðastjóri Sambands ungra Framsóknarmanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar