Hornspyrnur Dimarcos gerðu gæfumuninn í sjöunda sigri Inter í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2026 19:00 Federico Dimarco átti stóran þátt í báðum mörkum Inter gegn Lecce. getty/Maurizio Lagana Eftir erfitt tap í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn náði Inter vopnum sínum á ný með 0-2 sigri á Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Eftir erfitt tap í Meistaradeildinni á miðvikudaginn náði Inter vopnum sínum á ný með 0-2 sigri á Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Inter er nú með tíu stiga forskot á granna sína í AC Milan á toppi deildarinnar. Inter hefur unnið sjö deildarleiki í röð og er í góðri stöðu til að vinna ítalska meistaratitilinn í þriðja sinn á síðustu sex árum. Inter tapaði 3-1 fyrir Bodø/Glimt í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku og það tók liðið 75 mínútur að brjóta Lecce á bak aftur í kvöld. Henrikh Mkhitaryan skoraði þá eftir hornspyrnu frá Federico Dimarco. Önnur hornspyrna ítalska landsliðsmannsins skilaði marki á 82. mínútu en þá skallaði Manuel Akanji boltann í netið. Dimarco hefur spilað vel í vetur og hefur lagt upp flest mörk allra í ítölsku deildinni, eða fjórtán í 24 leikjum. Hann hefur einnig skorað fimm mörk sjálfur og því komið með beinum hætti að nítján deildarmörkum á tímabilinu. Mkhitaryan og Akanji komu báðir inn á sem varamenn á 60. mínútu og þeir sáu til þess að Inter náði í þrjú stig á Stadio Via del Mare. Lecce er í 17. sæti deildarinnar með 24 stig, þremur stigum frá fallsæti. Fiorentina, lið Alberts Guðmundssonar, getur jafnað Lecce að stigum með sigri á Pisa á mánudaginn.
Ítalski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Sjá meira