Mjúku innviðirnir Karl Pétur Jónsson skrifar 23. febrúar 2026 08:03 Það er áhugaverð þversögn fólgin í því að kalla sig sagnaþjóð, en horfa á sagnamennsku sem kostnað. Við Íslendingar lítum gjarnan á menningu, sjálfsmynd, ímynd og markaðssamskipti eins og mjúkt aukaatriði; gott er að hafa þegar vel árar, en það fyrsta sem skorið er niður þegar að þrengir. Innviðir Við tölum mikið um innviði. En við meinum yfirleitt bara stál og steypu: vegi, brýr, hafnir, hús. Það er skiljanlegt. Áþreifanlegir hlutir eru mælanlegir og fara vel í bókhaldi. En mjúku innviðir þjóðarinnar eru ekki síður raunverulegir: orðspor, traust, frásögn, sjálfsmynd og sameiginleg rödd. Mjúku innviðirnir skapa grunn þess að geta selt vörur á hærra verði en samkeppnin. Mjúku innviðirnir laða að hæfileika, selja vörurnar okkar og vekja á okkur athygli sem getur verið afar verðmæt. Markaðssetning landsins og útflutingsvara er blanda af sagnamennsku, viðskiptum og vísindum – og skapar grjóthörð verðmæti. Við höfum oft verið heppin í markaðssetningu landsins. Stóratburðir á borð við leiðtogafundi, þorskastríð, eldgos og efnahagshrun hafa komið landinu í heimsfréttir. Ísland hefur fengið óbeina alþjóðlega kynningu í alþjóðlegum kvikmyndaverkum á borð við Interstellar, Game of Thrones og Star Wars sagnabálkinum. Sú síðastnefnda setti Reynisfjöru á heimskortið. Og svo segja listamennirnir okkar sögur Íslands með sínum hætti: Björk, Laufey, Kaleo, Baltasar og fjölmargir aðrir. En þetta er of oft byggt á tilviljunum eða einstaklingsframtaki þegar Ísland fær sýnileika á alþjóðasviði. Ísland skortir strategíska langtímahugsun þegar kemur að því að tala um gæði lands og þjóðar. Sýnileiki þarf að vera stöðugur, máttur endurtekningarinnar er mikill. Við þurfum að styrkja mjúku innviðina með markvissum hætti. Ekki með einstaka átökum, heldur með yfirvegaðri, ítrekaðri sagnamennsku. Norðmenn hafa gert þetta vel. Hvers vegna ekki að horfa til þess sem nágrannar okkar hafa gert? Fiskurinn sem sigraði heiminn Norðmenn eru stórveldi í útflutningi laxaafurða. Þeir hafa yfirburðastöðu á heimsmarkaði, með yfir 40% markaðshlutdeild og geta selt afurðir sínar á hærra verði en aðrar þjóðir. Hvernig komust Norðmenn á þennan stað? Norðmenn selja ekki bara lax. Þeir selja traust, uppruna, gæði, öryggi – og tilfinningu. Þeir hafa sameinað útflutning sjávarafurða undir vörumerki sem er notað kerfisbundið í markaðsstarfi og byggt utan um það heila vél sem framleiðir efni, herferðir og samræmda ímynd. Þetta er ekki byggt á tilviljunum, heldur markvissu, samfelldu áratugalöngu starfi. Höfundur sat fund Norsk-íslenska viðskiptaráðsins og SFS fyrir 11 árum, þar sem Arne Hjeltnes útskýrði af listfengi langtímastrategíu Norðmanna í sölu á laxi. Kjarni frásagnarinnar er einfaldur en sterkur: Náttúran, kaldur og hreinn sjór, ferskleiki, ábyrgð og gæði. Þetta eru hugtök sem gera vöruna dýrmætari í huga neytandans. Frægasta dæmið er útflutningur á laxi til Japans. Um miðjan níunda áratuginn fóru Norðmenn í skipulagt átak til að kynna eldislax sem öruggt og spennandi hráefni í sushi og sashimi. Japanir höfðu aldrei notað lax í sushi. En með markvissri markaðssetningu tókst Norðmönnum að sannfæra heila þjóð um að breyta matarmenningu sinni. Sala á norskum laxi fór úr 100 tonnum í 40 þúsund tonn á örfáum árum. Áfangastaðurinn Noregur er í mikilli sókn í ferðaþjónustu. Í beinni samkeppni við Ísland. Áþekkt landslag og svipað veðurfar. Noregur er staðkvæmdarvara fyrir Ísland. Ísland hefur notið góðs af tilviljanakenndum sýnileika á síðustu 20 árum eins og komið hefur fram. En við höfum ekki verið markviss og stöðug í markaðssetningu á landinu. Þetta hafa aðilar í ferðaþjónustu ítrekað bent á. Ytri aðstæður á borð við gengi gjaldmiðla hafa ekki hjálpað undanfarið, en þá er beinlínis furðulegt að stjórnvöld kasti ítrekað sandi í tannhjól ferðaþjónustunnar. Nefna má komugjöld á farþega skemmtiferðaskipa og vörugjöld á bíla. Í ferðaþjónustu er strategía Norðmanna markviss og stöðug. Eins og í útflutningi sjávarafurða, hefur það skilað fádæma árangri með sjávarafurðir. Stöðugleiki í markaðssókn á lykilmörkuðum og ítrekun skýrra skilaboða skilar árangri. Við á Íslandi höfum líka náð árangri. En við höfum þó haft tilhneigingu til að vera viðbragðssinnuð í stað þess að ná árangri í kjölfar langtímastefnu. Þegar eitthvað hrynur þá bregðumst við með einni sterkri herferð. Hún getur virkað. En svo klárast hún og við byrjum aftur á núlli, næst. Kvikmyndir: sögur sem verða útflutningsvara Kvikmyndir eru áhrifaríkasta sagnaformið og það aðgengilegasta í skjávæddum heimi. Íslenskt fagfólk í greininni er á heimsmælikvarða. En nú er svo komið að orðinn er hrikalegur samdráttur í framleiðslu. Óvissa um styrktar- og endurgreiðslukerfi hefur nú þegar valdið verulegum samdrætti. Þegar samfellan rofnar, missum við fólk. Norðmenn hafa náð eftirtektarverðum árangri í kvikmyndagerð á síðustu árum. Það er ekki tilviljun. Styrkjakerfið er stöðugt, endurgreiðslur fyrirsjáanlegar og til viðbótar eru norsk ungmenni menntuð í kvikmyndalæsi. Dæmi um frábæran árangur eru fjöldi sjónvarpsþáttaraða: SKAM, Lilyhammer, Norsemen, Exit að ógleymdum Ölhundinum Berit. Um miðjan mars mun svo norska kvikmyndin Affeksjonsverdi keppa um 9 óskarsverðlaun, þar á meðal besta myndin. Norska kvikmyndamiðstöðin er búin að styrkja þessa mynd um tæpan hálfan milljarð ÍSK. Hún kostaði um milljarð. Nýjasta útspilið er að búið er að leigja lúxusvillu í Hollywoodhæðum til að halda móttökur í Óskarsvikunni, til að auka líkurnar á að einhver verðlaunanna falli kvikmyndinni í skaut. Tækifærin í stöðunni Það eru erfiðir tímar. Atvinnuþref. Við stöndum frammi fyrir efnahagslegum áskorunum sem snúast að miklu leyti um að skapa meiri verðmæti í landinu. Á sama tíma er upplausn í alþjóðakerfinu og óvissa um hluti sem hafa verið í föstum skorðum áratugum saman. Í þessu felast tækifæri. Sérstaklega fyrir 400 þúsund manna þjóð sem er vel menntuð, snör í snúningum og hefur upp á eitthvað spennandi að bjóða. Til að nýta tækifærin þurfum við að hafa plan. Planið verður að snúast um að nýta sérstöðu okkar með skipulegum hætti. Að virkja mjúku innviðina strategískt yfir langan tíma. Hvað Ísland getur gert? Berum virðingu fyrir mjúku innviðunum Trúum á mátt sögunnar: Við verðum að treysta á mjúku innviðina – orðspor okkar og sögur – sem jafn mikilvægan grundvöll fyrir þjóðarhag og hefðbundna innviði eins og vegi og brýr Festum langtímamarkmið og fjármögnun – markaðssetning er nauðsynleg fjárfesting. Tölum einni rödd í markaðssetningu Íslands. Jafnt sem áfangastaðar og sölu á öðrum útflutningi. Setjum kynningu og dreifingu inn í virðiskeðjuna frá byrjun. Sköpum fyrirsjáanleika í kvikmyndagerð og öðrum skapandi greinum. Sagnaþjóðin þarf að trúa á söguna Við viljum auðvitað ekki að verða eins og Norðmenn í einu og öllu. En við getum tileinkað okkur langtímahugsun og samfellu í nýtingu mjúku innviðanna. Sagnamennska og markaðssetning á ekki að vera það fyrsta sem er skorið niður þegar illa gengur. Mjúku innviðirnir eru jafn mikilvægir fyrir þjóðarhag eins og vegir, rafmagn og brýr. Sagan er ekki bara það sem við segjum um okkur sjálf á 17. júní. Hún er það sem restin af heiminum trúir um okkur þegar hann velur okkur – eða eitthvað annað. Ef Noregur getur gert lax að tákni, landið að vörumerki og kvikmyndaiðnað að útflutningsvél, þá er spurningin ekki hvort við getum það líka. Spurningin er hvort við treystum okkur til að hætta að kalla sagnamennsku eyðslu – og byrjað að hugsa hana sem fjárfestingu. Höfundur er sérfræðingur í strategískum samskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karl Pétur Jónsson Mest lesið Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Saman erum við sterkari Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon skrifar Skoðun Inngilding er daglegt líf Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin skrifar Skoðun Jöfn tækifæri barna eru ekki sjálfgefin, við þurfum að tryggja þau Unnur Ólöf Tómasdóttir skrifar Skoðun Borg sem er skemmtilegri en skjárinn Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson,Hafsteinn Hauksson skrifar Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Katrín Valdís Hjartardottir skrifar Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson Skoðun
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Jöfn tækifæri barna eru ekki sjálfgefin, við þurfum að tryggja þau Unnur Ólöf Tómasdóttir skrifar
Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson Skoðun