Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Atli Ísleifsson skrifar 23. febrúar 2026 07:10 Spáð er hlýnandi veðri í bili, hiti víða eitt til sjö stig síðdegis. Vísir/Vilhelm Veðurstofan segir að næstu daga sé útlit fyrir lægðagang og umhleypingasamt veður, en grunn lægð fyrir vestan land mun stjórna veðrinu í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði suðaustan kaldi eða stinningskaldi og skúrir eða slydduél, en þurrt að mestu norðaustanlands. Spáð er hlýnandi veðri í bili, hiti víða eitt til sjö stig síðdegis. Á morgun fer heldur dýpri lægð norður skammt fyrir austan land. Vindur snýst í ákveðna norðan- og norðvestanátt, jafnvel hvassviðri á Austfjörðum síðdegis. Él, einkum norðan heiða, en slydda eða rigning um tíma á Suðaustur- og Austurlandi þegar lægðin fer hjá. Það kólnar aftur, annað kvöld verður komið frost um allt land. Á miðvikudag er síðan spáð kaldri suðvestanátt með snjókomu eða éljum, en þurru veðri austantil á landinu. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Gengur í norðan og norðvestan 8-15 m/s. Él, einkum norðanlands, en rigning eða snjókoma um tíma á Suðaustur- og Austurlandi. Kólnandi, frost víða 0 til 7 stig síðdegis. Á miðvikudag: Suðvestan 5-13 og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt. Víða snjókoma vestanlands, en að mestu þurrt austantil. Áfram kalt í veðri. Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða él. Talsvert frost, einkum inn til landsins. Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og él á víð og dreif, en að mestu þurrt í innsveitum. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira