Vonast eftir stærra hlutverki Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 16:02 Rio Ngumoha hefur heillað marga í vetur. Einhverjir kalla eftir því að hann fái stærra hlutverk hjá Liverpool, þrátt fyrir ungan aldur. Jay Barratt - AMA/Getty Images Rio Ngumoha átti stóran hlut í naumum 1-0 sigri Liverpool á Nottingham Forest á sunnudaginn var. Hann hefur heillað í vetur þrátt fyrir ungan aldur.
Ngumoha er aðeins 17 ára gamall og varð í ágúst yngsti markaskorari í sögu Liverpool þegar hann skoraði sigurmark gegn Newcastle á tíundu mínútu uppbótartíma. Hann átti aftur öfluga innkomu af bekknum á sunnudaginn en í öllum hans leikjum í deildinni hefur hann komið inn af varamannabekknum. Rio Ferdinand, Jamie Carragher og Daniel Sturridge eru á meðal þeirra sem hrósuðu Ngumoha í hástert eftir leik. Carragher sagði hann hafa gert meira á korteri en Mohamed Salah gerði á 75 mínútum og Sturridge sagði hann „rafmagnaðan“ og að Ngumoha eigi „skilið að spila meira, það er svo einfalt.“ Í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, segist Ngumoha hafa verið ákveðinn í að láta að sér kveða. „Ég veit ég þarf að gera eitthvað til að hafa áhrif á leikinn, hvort sem það er með boltann eða án hans,“ segir unglingurinn og bætir við: „Í hvert skipti sem ég fæ tækifæri með liðinu vil ég sýna hvað í mér býr.“ Ngumoha fékk stærra hlutverk við brottför Luis Díaz í sumar en kantmenn Liverpool hafa átt í vandræðum. Cody Gakpo hefur spilað mest allra framliggjandi leikmanna Liverpool í vetur en sætt töluverðri gagnrýni. Eftir að hafa dregið vagninn síðustu ár hefur Mohamed Salah verið minna áberandi og hefur spilað níu leiki án þess að skora. Ngumoha hefur fengið sénsa hér og þar en Arne Slot, þjálfari Liverpool, vill fara sparlega með kantmanninn spræka og koma í veg fyrir að hann lendi í meiðslum sökum álags á ungan skrokk. „Vonandi fæ ég að spila meira á næstunni. Ég held bara áfram að sinna mínu og vonandi öðlast traust þjálfarans sem leiðir til þess að fá fleiri mínútur á vellinum,“ segir Ngumoha sem hefur leikið með yngri liðum Liverpool samhliða sénsum fyrir aðalliðið undanfarnar vikur. Liverpool hefur unnið tvo leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn um hríð. Liðið situr í sjötta sæti með 45 stig, jafnt Chelsea, sem er í því fimmta, að stigum. Næsti leikur er við West Ham United, sem er í fallbaráttu, á Anfield klukkan 15:00 á laugardag.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Sjá meira