Eina sem var öðruvísi var graslyktin í göngunum fyrir leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 22:32 Snoop Dogg, meðeigandi Swansea City, fékk frábærar móttökur frá stuðningsmönnum liðsins. Getty/Athena Pictures Bandaríski rapparinn Snoop Dogg kom í fyrsta sinn fyrir framan stuðningsmenn velska fótboltaliðsins Swansea síðan hann varð fjárfestir í liðinu þegar hann mætti á heimaleik þess gegn Preston North End á þriðjudag.
Beint eftir að hafa slegið í gegn á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu hélt Snoop Dogg til Suður-Wales. Létu vel í sér heyra Snoop Dogg hafði beðið stuðningsmenn Swansea um að hylla sig með því að veifa handklæðum – með áletruninni „Látið í ykkur heyra“ – þegar hann gengi inn á völlinn fyrir leikinn í Championship-deildinni. Þeir gerðu einmitt það, þúsundir þeirra, og Snoop Dogg veifaði sínu eigin handklæði þegar hann gekk meðfram vellinum og æsti upp mannfjöldann. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible) Swansea náði að bjarga jafntefli gegn Preston þegar Liam Cullen jafnaði mark Daniel Jebbison úr fyrri hálfleik með glæsilegum skalla á fimmtu mínútu uppbótartíma seinni hálfleiks. Eftir að leik Swansea og Preston lauk með 1-1 jafntefli í ensku B-deildinni á þriðjudag var Paul Heckingbottom, stjóri gestanna, fljótur að gera grín að óvenjulegri nærveru alþjóðlegu stórstjörnunnar. Þegar Heckingbottom ræddi við fjölmiðla eftir 1-1 jafnteflið sagði hann í gríni: „Það eina sem ég tók eftir sem var öðruvísi var graslyktin í göngunum fyrir leikinn,“ sagði Heckingbottom. Hann er þá auðvitað að tala um marijúanalykt enda er Snoop Dog þekktur fyrir ást sína á kannabis. „Þetta er bara öðruvísi fyrir fólk sem er hér í hverri viku, er það ekki? Við spilum ekki við Swansea í hverri viku, svo þetta er ekkert öðruvísi fyrir okkur. Við fórum til Ipswich um daginn, þeir voru í stuði, stuðningsmenn þeirra voru í stuði og það voru læti allan leikinn. Mér fannst við halda öllum hérna rólegum þar til í lokin,“ sagði Heckingbottom. Ræddi við leikmenn eftir leik Vitor Matos þjálfari Swansea sagði frá því að Snoop Dogg hefði rætt við leikmenn sína eftir leik. View this post on Instagram A post shared by DAZN Football (@daznfootball) „Eftir leikinn kom hann inn í búningsklefa og ræddi við leikmennina. Hann er maður sem vill taka þátt, ekki bara með okkur heldur líka með ólympíuliði Bandaríkjanna. Hann elskar íþróttir, elskar íþróttafólk. Hann elskar félagið, elskar borgina og vill vera hér,“ sagði Matos. „Ég held að það sé allt jákvætt og hann var mjög ánægður því honum fannst liðið hafa rétta hugarfarið. Honum fannst liðið geta gefið í,“ sagði Matos. Meðeigandi og fjárfestir Snoop Dogg varð það sem Swansea lýsti sem „meðeigandi og fjárfestir“ í júlí síðastliðnum, þótt eignarhlutur hans í félaginu hafi ekki verið gefinn upp. Meðal minnihlutaeigenda félagsins eru einnig bandaríska athafnakonan og fjölmiðlakonan Martha Stewart og Ballon d'Or-verðlaunahafinn Luka Modrić. Þátttaka þeirra beinir kastljósinu að öðru lítt þekktu liði frá Wales, í kjölfar vel skjalfestrar vegferðar Wrexham undir eignarhaldi Hollywood-stjarna. Swansea er í fimmtánda sæti í ensku B-deildinni. Liðið var síðast í ensku úrvalsdeildinni árið 2018. Rapparinn vakti athygli á Vetrarólympíuleikunum, þar sem hann var heiðursþjálfari bandaríska liðsins auk þess að vera sérstakur fréttaritari fyrir sjónvarpsstöðina NBC, þegar hann bað bresku krulluspilarana Bruce Mouat og Jennifer Dodds um mynd.
Enski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Sjá meira