Gagnrýna ítölsk yfirvöld fyrir meðferð á stuðningsmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 18:46 Stuðningsmenn Borussia Dortmund hafa óvænt lent í vandræðum á Ítalíu. Getty/Stefan Koops Þýska félagið Borussia Dortmund hefur gagnrýnt aðgerðir ítalskra yfirvalda sem valda því að sumir stuðningsmenn liðsins misstu af leik liðsins gegn Atalanta í Meistaradeildinni í kvöld.
Félagið staðfesti að sumum stuðningsmönnum þess hefði verið meinaður aðgangur að Ítalíu á meðan aðrir hefðu fengið heimsókn frá lögreglu á gististaði sína. Í yfirlýsingu sinni sagði Dortmund: „Félagið var ekki upplýst fyrir fram um þessar ófyrirleitnu aðgerðir. Félagið er meira en hissa á umfangi og stærðargráðu lögregluaðgerðanna. Aðgerðir af þessu tagi og af þessari stærðargráðu hafa aldrei áður verið framkvæmdar í tengslum við útileiki Borussia Dortmund á alþjóðavettvangi.“ Þýska félagið bætti við að þeim þættu aðgerðirnar „óskiljanlegar“ og drógu í efa „að þetta væri réttlætanleg hegðun af hálfu yfirvalda“. Á þriðjudag sagði einn af stuðningsmannahópum Dortmund að ástandið væri „fordæmalaust“ og þar af leiðandi hefði fjöldi stuðningsmanna „treglega ákveðið að halda sig fjarri leiknum í Bergamo“. Dortmund fer inn í seinni leikinn í útsláttarkeppninni með 2-0 forskot frá fyrri leiknum í Þýskalandi. Sigurvegarar einvígisins mæta annaðhvort Arsenal eða Bayern München í 16-liða úrslitum keppninnar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Þýski boltinn Mest lesið Kristján sigraði Bakgarðshlaupið Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Enski boltinn Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Fótbolti Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Fótbolti Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Enski boltinn Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Handbolti Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Handbolti „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Stefán Ingi skoraði í jafntefli Guðlaugur náði í stig gegn Mikael og Daníel eftir dramatík Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Stefán Teitur skoraði Brynjar skoraði í sigri Sønderjyske Atlético vann Madrídarslaginn Rangers vann Celtic Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Ótrúlegt atvik í Taílandi þegar Townsend varð fyrir valtara Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjá meira