Tíu leikmenn Juventus risu næstum upp frá dauðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 22:37 Victor Osimhen fagnar mikilvæga markinu sínu fyrir Galatasaray á Ítalíu í kvöld. Getty/Chris Ricco Tyrknesku meistararnir í Galatasaray tryggðu sér í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar þrátt fyrir 3-2 tap í seinni leik sínum á móti Juventus.
Galatasaray varð áttunda og síðasta liðið til að komast í gegnum umspilið en fyrr í kvöld komust Real Madrid, Paris Saint Germain og Atalanta áfram.Galatasaray vann 5-2 sigur á Juventus í Tyrklandi í fyrri leiknum en Juve-menn komu einvíginu í framlengingu eftir 3-0 sigur í venjulegum leiktíma í kvöld.Það sem gerði það enn merkilegra er að Juventus spilaði tíu á móti ellefu frá 48. mínútu og skoraði tvö af mörkum sínum manni færri.Mörk Juventus skoruðu Manuel Locatelli (víti á 37. mínútu), Federico Gatti (á 70. mínútu) og Weston McKennie (82. mínúta) og með því tókst liðinu að rísa upp frá dauðum. Það fór hins vegar að reyna á liðið í framlengingunni eftir að hafa spilað næstum því heilan hálfleik, tíu á móti ellefu.Tyrkirnir nýttu sér það og það var Victor Osimhen sem skoraði fyrsta mark framlengingarinnar, það mark nægði Galatasaray til að komast yfir 6-5 samanlagt. Baris Alper Yilmaz bætti síðan við öðru marki í blálokin og því munaði á endanum tveimur mörkum á liðunum. Galatasaray vann 7-5 samtals og mætir annaðhvort Liverpool eða Tottenham í sextán liða úrslitum keppninnar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Fótbolti Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Fótbolti Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Körfubolti Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Íslenski boltinn Samningur í höfn hjá Vinicius Junior og Real Madrid Fótbolti NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöld Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Uppgjörið: Valur-Nordsjælland 0-2 | Róðurinn verður þungur í Danmörku Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Samningur í höfn hjá Vinicius Junior og Real Madrid Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Leikmannasamtökin segja um djúpstæða misbeitingu á valdi forsetans að ræða Stóð við loforð og litaði hárið bleikt Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Fótboltamaður grimmilega myrtur eftir misheppnað rán Real Madrid búið að kaupa Diomande Vantraust UEFA á Infantino stendur sem og sniðganga Tvö mörk, stoðsending og met hjá Messi Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni FIFA skuldar keppnisborgum á HM mörg hundruð milljónir Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum Finnst Salah taka niður fyrir sig með því að fara til Tyrklands „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Littler segist vera betri íþróttamaður en Yamal Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Sjá meira