Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald skrifar 27. febrúar 2026 11:48 Þegar borgin eyðir um efni fram á sama tíma og tekjur aukast, hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvernig stjórnsýslan forgangsraðar tíma og fjármunum og hvort almannafé sé nýtt af ábyrgð. Fjölmörg dæmi má finna um óskilvirka ferla og furðulega nýtingu fjármuna innan borgarkerfisins og mun ég taka nokkur þeirra fyrir á næstu vikum. Því miður er af nógu að taka. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur það hlutverk samkvæmt samþykktum að móta stefnu og taka ákvarðanir um stærri mál á sviði skipulags, samgangna og framkvæmda. Ráðið á að fjalla um stefnumótandi mál, ekki daglega verkstjórn viðhalds. Ráðið er skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara. Fundi sitja fulltrúar ráðsins ásamt embættismönnum og starfsmönnum borgarinnar, samtals fimmtán manns. Undanfarnar vikur hafa tólf borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar setið einhvern af fundunum og þar hafa fulltrúar allra flokka sem fengu kjörna borgarfulltrúa í síðustu borgarstjórnarkosningum átt sæti. Daglegur rekstur borgarlandsins, þar á meðal gatnalýsing, er á ábyrgð skrifstofu borgarlandsins innan umhverfis- og skipulagssviðs. Skrifstofa borgarlandsins fer með hlutverk veghaldara og sér um viðhald og rekstur götulýsingar í borginni. Verkaskiptingin er því skýr á pappír. Skrifstofan hefur ekki einungis það hlutverk að skipta um ljósaperur, heldur eru meginverkefni hennar einnig að sinna m.a. snjómokstri, götuhreinsunum og garðslætti. Það ætti að vera flestum borgarbúum ljóst að skrifstofan sinnir ekki nógu vel þeim verkefnum sem henni er falið og að forgangsröðunin er rammskökk. Þegar litið er á fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá fyrstu fundum ársins blasir þó við að verkaskiptingin milli ráðsins og sviðsins er í miklum ólestri. Ráðið hefur tekið fyrir fjölmörg mál sem snúa að því hvort eigi að skipta um perur eða sinna viðgerðum á einstökum ljósastaurum. Af fundargerðunum má ráða að tugir ljósa í borginni eru óvirk við leikskóla, kirkjur, göngustíga og önnur almenningssvæði. Tvö dæmi segja meira en mörg orð. “Lagt er til að ráðist verði í peruskipti og viðgerðir á ljósastaurum við Langholtskirkju og á göngustíg niður að Langholtsvegi, meðal annars við biðstöð strætisvagna.” “Lagt er til að gert verði við ljóskastara við styttu af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli sem hafa verið óvirkir um langt skeið.” Báðum tillögunum var frestað. Viku síðar voru sömu mál lögð fram að nýju og þá vísað til skrifstofu borgarlandsins til meðferðar. Á sama fundi kom ný tillaga um viðgerð á ljóskerjum meðfram gönguleið við norðurbakka Tjarnarinnar milli Ráðhúss Reykjavíkur og Lækjargötu. Öll ljósker á umræddri leið voru óvirk, um fjörutíu talsins. Niðurstaðan var aftur sú sama. Málinu var frestað. Það virðist vera tekin pólitísk ákvörðun í hvert skipti sem skipta á um ljósaperu! Þetta er ekki eitthvað sem ég er að skálda upp í pólitískum tilgangi, heldur einfaldlega staðreynd. Ofangreind dæmi eru ekki einangruð tilvik. Í fundargerðum kemur fram að gatnalýsingu hafi verið ábótavant í mörgum hverfum borgarinnar undanfarna vetur vegna tíðra bilana og ónógs viðhalds. Dæmi eru um að ljósastaurar hafi verið óvirkir vikum, mánuðum og jafnvel árum saman. Ef pera virkar ekki þá á að skipta um hana. Það er ekki hugmyndafræðilegt eða pólitískt álitamál. Þetta er grunnviðhald og það snýst um öryggi borgarbúa. Slök lýsing við göngustíga og almenningssvæði eykur slysahættu og dregur úr öryggistilfinningu borgarbúa. Staðan minnir helst á vanvirka fjölskyldu. Ljósapera fer í eldhúsinu. Í stað þess að einhver taki á skarið og skipti um hana er boðað til fjölskyldufundar. Umræðan er tekin. Málinu er frestað og enginn skiptir út perunni. Það er heldur ekki ódýrt að halda fundi um ljósaperur. Launakostnaður eins klukkutíma nefndarfundar, miðað við þátttöku sjö kjörinna fulltrúa og átta starfsmanna borgarinnar og með áætluðum launatengdum gjöldum, nemur að lágmarki um 180 þúsund krónum. Þá er hvorki reiknaður með undirbúningur né annar umsýslukostnaður. Vandinn er ekki peran. Vandinn er að verkaskiptingin sem er skýr á pappír virðist ekki virka í framkvæmd. Stjórnmál eiga að móta stefnu. Stjórnsýslan á svo að framkvæma. Þegar ljósin slokkna í borginni á kerfið að bregðast við, ekki halda fund. Það blasir eiginlega við. Það þarf ekki að kveikja ljósin til að sjá það. Höfundur er yfirlögfræðingur Reir Verk og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Páll Edwald Miðflokkurinn Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar