Liðin úr Bestu röðuðu inn mörkum Sindri Sverrisson skrifar 28. febrúar 2026 16:10 Eiður Gauti var á skotskónum í dag. vísir / anton Stjarnan, KR og Fram léku mótherja sína grátt í Lengjubikar karla í fótbolta í dag. Stjarnan er komin í undanúrslit og KR nánast öruggt þangað.
KR-ingar unnu 5-1 stórsigur gegn Njarðvík í toppslagnum í 3. riðli A-deildar og urðu þar með fyrstir til að vinna Njarðvíkinga. Sigurinn kemur KR á topp 3. riðils og útlit er fyrir að liðið endi þar og komist í undanúrslitin sem Njarðvíkingar rétt missa af, tveimur stigum á eftir KR. Víkingar og ÍR eru svo reyndar þremur stigum á eftir KR og eiga eftir að mætast en eru með 9 og 10 mörkum verri markatölu en KR. Sigurður Breki Kárason kom KR yfir í dag en Njarðvík jafnaði metin með marki frá miðju. Eiður Gautu Sæbjörnsson kom svo KR yfir að nýju fyrir hálfleik og Amin Cosic skoraði þriðja mark KR í seinni hálfleik, gegn sínum gömlu félögum. Eiður Gauti bætti svo við öðru marki sínu í kjölfarið, og fimmta mark KR kom svo úr smiðju Alexanders Rafns Pálmasonar þegar um tíu mínútur voru eftir. Stjörnumenn í undanúrslit Stjarnan vann einnig stórsigur, 6-1 gegn HK í Miðgarði. Stjörnumenn eru því með fullt hús eftir fjóra leiki og búnir að tryggja sér efsta sætið í riðli 1, og þar með sæti í undanúrslitum, því þeir eru núna fimm stigum á undan Keflavík og HK þegar hvert lið á bara einn leik eftir. Þorsteinn Aron Antonsson kom reyndar HK yfir á 19. mínútu en Haukur Örn Brink jafnaði og Örvar Eggertsson kom svo Stjörnunni yfir á 49. mínútu. Í millitíðinni fékk Arnar Freyr Smárason aðstoðarþjálfari HK rautt spjald. Haukur bætti við örðu marki sínu á 56. mínútu og fullkomnaði þrennuna fimm mínútum síðar. HK missti svo Aron Kristófer Lárusson af velli með rautt spjald á 72. mínútu og lá lokakaflanum skoraði Guðmundur Baldvin Nökkvason úr víti og Bjarki Hauksson lokamarkið. Fram sneri taflinu við gegn Vestra Fram er í 4. sæti riðilsins með sex stig, eftir að hafa unnið 5-2 sigur gegn Vestra í dag. Magnús Þórðarson kom Fram yfir á 6. mínútu en Imran Mehanovic og Johannes Selvén sneru stöðunni Vestra í vil fyrir hálfleik, 2-1. Fram skoraði þrjú mörk á átta mínútum um miðjan seinni hálfleik. Varamaðurinn Þengill Orrason jafnaði metin á 65. mínútu og þeir Kennie Chopart og Kristófer Konráðsson bættu við mörkum í kjölfarið. Róbert Hauksson innsiglaði svo sigur Framara í lokin.
Lengjubikar karla Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Sjá meira