Stórir íþróttaviðburðir í hættu vegna átaka í Mið-Austurlöndum Aron Guðmundsson skrifar 3. mars 2026 18:30 Ronaldo, Messi og Lewis Hamilton eiga allir að etja kappi á mismunandi íþróttaviðburðum í Mið-Austurlöndum næstu vikurnar. Vísir/Samsett Forráðamenn Formúlu 1 mótaraðarinnar eru væntanlega stöðugt að fylgjast með þróun mála varðandi stríðsátök sem brotist hafa út í Mið-Austurlöndum. Stórir íþróttaviðburðir, sem meðal annars stórstjörnurnar Cristiano Ronaldo og Lionel Messi taka þátt í, eru í hættu á að geta ekki farið fram sökum ástandsins.
Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Átökin setja líf fólks á svæðinu í hættu og úr skorðum. Þegar kemur að íþróttaheiminum eru margir stórir íþróttaviðburðir á dagskrá sem eiga að fara fram í Mið-Austurlöndunum en ekki er víst að geti farið fram. Formúla 1 í fjötrum? Komandi keppnistímabil í Formúlu 1 mótaröðinni, fyrsta tímabilið eftir stærstu reglubreytingar í sögu mótaraðarinnar, hefst um komandi helgi í Melbourne í Ástralíu. Það reyndist liðunum sem og starfsmönnum Formúlu 1, mörgum hverjum, erfitt að komast til Melbourne en keppnishelgin sjálf ætti að geta farið áfallalaust fram. Staðan er hins vegar snúnari þegar horft er mánuð fram í tímann þegar keppnishelgar mótaraðarinnar í Barein og Sádi-Arabíu eiga að fara fram. Nokkrum vikum fyrir keppnishelgar er starfsfólk liðanna og Formúlu 1 farið að undirbúa sig á keppnisstað og því verður áhugavert að fylgjast með því hvort Formúla 1 geti haldið plani. Evrópu- og heimsmeistarar í Katar Þann 27.mars næstkomandi á svo að fara fram stórleikur ríkjandi Evrópumeistara Spánar og ríkjandi heimsmeistara Argentínu í Katar. Leikurinn ber nafnið Finalissima en þar gæti Lionel Messi, sem er af mörgum talinn besti fótboltamaður allra tíma, bætt enn einum bikarnum í sitt safn. Öllum fótboltaleikjum í Katar, frá og með sunnudeginum síðastliðnum, hefur verið frestað um óákveðinn tíma sökum ástandsins í Mið-Austurlöndunum og segir Evrópska knattspyrnusambandið, sem stendur að Finalissima leiknum að fylgst sé náið með stöðunni. Leik frestað hjá Ronaldo Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans í sádi-arabíska liðinu Al-Nassr hafa nú þegar orðið fyrir áhrifum af átökunum. Leik liðsins Meistaradeild Asíu sem fara átti fram á morgun í Dúbaí hefur verið frestað. Þá er kominn upp snúin staða í tengslum við þátttöku íranska landsliðsins á HM karla í fótbolta í sumar sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Íran á að mæta Nýja Sjálandi í fyrsta leik sínum á mótinu þann 16.júní síðar á þessu ári í Inglewood í Kaliforníu. Mikil óvissa ríkir þá um þátttöku Íran á mótinu og segir forseti íranska knattspyrnusambandsins, Mehdi Taj að fólk geti ekki búist við því að þar á bæ hlakki mönnum til að taka þátt á mótinu.
Akstursíþróttir Fótbolti Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Sjá meira