Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 4. mars 2026 07:02 Mikel Arteta mætir með sína menn í liði Arsenal í heimsókn til Brighton í kvöld. Liðið spilar undir stjórn Fabian Hurzeler Vísir/Getty Fabian Hurzeler, knattspyrnustjóri Brighton, gagnrýndi það hversu langan tíma topplið Arsenal tekur í að framkvæma hornspyrnur í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal og Brighton mætast í kvöld í deildinni.
Hurzeler, nýtti tækifærið á blaðamannafundi í gær til þess að gagnrýna Arsenal liðið fyrir það hversu langan tíma það tæki leikmenn liðsins að koma boltanum í leik þegar að um hornspyrnur væri að ræða. Þjóðverjinn hafði fyrr á tímabilinu minnst á það hversu þýðingarmikil föstu leikatriðin gætu verið en upp á síðkastið hefur umræðan í kringum þau verið neikvæð. Segir Huerzler það vera stöðuna sökum þess að föstu leikatriðin séu farin að trufla flæðið í leikjunum sjálfum. Klippa: Gagnrýndi Arsenal fyrir leikinn í kvöld „Við þurfum skýrar reglur varðandi það hversu langan tíma þú getur tekið þér til að framkvæma hornspyrnur eða aukaspyrnur. Þegar að Arsenal á hornspyrnu og er í forystunni í sínum leikjum geta þeir eytt yfir einni mínútu í að framkvæma sínar hornspyrnur.“ Benti Hurzeler á það sem honum finnst vera skyldu liðanna í ensku úrvalsdeildinni gagnvart stuðningsmönnum sem eyða peningum til þess að sækja leiki deildarinnar. „Hver stuðningsmaður eyðir stórum fjárhæðum til þess að horfa á leiki hjá okkur og ættu að geta séð jafn mikið af spiluðum fótbolta og allir aðrir. Þeir vilja sjá fótboltaleiki. Ekki bara fimmtíu mínútur þar sem að boltinn er í leik og svo fjörutíu mínútur þar sem boltinn er ekki í leik.“ Ekki megi þó búast við breytingum á næstunni. „Við vitum hversu stórt hlutverk föst leikatriði spila í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er mikið tískufyrirbrigði akkúrat núna og við þurfum að aðlaga okkur að því.“ Samkvæmt tölfræðiveitunni OPTA eyðir Arsenal að meðaltali 44,4 sekúndum í að koma boltanum í leik í hornspyrnum. Mest allra liða í ensku úrvalsdeildinni. Brighton er hins vegar ekki ýkja langt undan. Lærisveinar Hurzeler eyða 37,4 sekúndum að meðaltali í að taka sínar hornspyrnur. Föst leikatriði hafa reynst Arsenal afar vel. Liðið hefur skorað sextán mörk upp úr hornspyrnum til að mynda. Þar af hafa níu þeirra marka reynst sigurmörk liðsins í leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hér fyrir neðan má sjá þau mörk. Klippa: Sigurmörk Arsenal eftir hornspyrnur Leikur Brighton og Arsenal hefst klukkan hálf átta og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 3.
Enski boltinn Arsenal FC Brighton & Hove Albion Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira