Köldu lofti beint til landsins Atli Ísleifsson skrifar 4. mars 2026 07:01 Heldur kólnar er líður á daginn og hiti nálægt frostmarki seinnipartinn. Vísir/Vilhelm Milli Íslands og Grænlands er nú víðáttumikil lægð sem beinir köldu lofti úr suðvestri til landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði því sunnan- og suðvestan kaldi eða strekkingur í dag en við Breiðafjörð og á Vestfjörðum megi búast við allhvössum vind um tíma síðdegis. „Líkt og gjarnan fylgir suðvestanáttum þá verður éljagangur sunnan- og vestantil og inn á milli má búast við dimmum éljum með takmörkuðu skyggni en bjartviðri í öðum landshlutum. Heldur kólnar er líður á daginn og hiti nálægt frostmarki seinnipartinn. Á morgun verður keimlíkt veður, sunnan og suðaustan stinningsgola eða kaldi, él og hiti 0 til 4 stig en léttskýjað að mestu og vægt frost norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti um og undir frostmarki. Á föstudag: Gengur í sunnan- og suðaustan 13-20 m/s með snjókomu, eða slyddu, en rigningu suðaustantil. Úrkomuminna norðanlands. Hlýnar í veðri og hiti 0 til 6 stig seinnipartinn. Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðvestanátt og snjókoma eða slydda, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig. Á sunnudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og dálítil él, en bjart að mestu fyrir norðan og austan. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn. Á mánudag: Suðaustlæg átt með snjókomu, slyddu eða rigningu og heldur hlýnandi veðri, en að mestu bjart norðaustantil. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu, en þurrt að mestu norðaustanlands.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira