Formúla 1

Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa mann­eskju ekki aftur“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hamilton er hress og kátur fyrir komandi leiktíð. Allt annað var að sjá hann stóran hluta síðasta árs.
Hamilton er hress og kátur fyrir komandi leiktíð. Allt annað var að sjá hann stóran hluta síðasta árs. Quinn Rooney/Getty Images

Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilson segist mæta tvíefldur til leiks á komandi tímabili í Formúlu 1 eftir strembið fyrsta ár með Ferrari í fyrra.

Hinn 41 árs gamli Hamilton skipti frá Mercedes yfir í Ferrari fyrir síðasta tímabil og átti vægast sagt strembið ár. Hann komst aldrei á pall og mátti greina sífellt meiri gremju og sjálfstraustsleysi eftir því sem á tímabilið leið.

Um helgina hefst annað tímabil hans með þeim rauðu og segist hann hafa nýtt tímann á milli leiktíða til að rétta sig af.

„Fríið var mjög jákvætt. Þetta er ekki mitt fyrsta ródeó og þetta snýst um að snúa hugarfarinu við sem er ekki alltaf einfalt. Ég vil halda í jákvæðnina og allur veturinn fór í að finna það,“ segir Hamilton.

„Það kom að miklu leyti frá æfingum sem hófust á fullu strax á jóladag. Ég trúi á sjálfan mig og ég veit að ég legg meiri vinnu á mig en allir aðrir í kringum mig,“ segir Hamilton enn fremur.

Óveðursskýin sem héngu yfir honum á síðasta ári séu því horfin og sá Hamilton sem fylgdi þeim sé einnig horfinn á braut.

„Ég held að ég hafi týnt sjálfum mér um stund. En sú persóna er horfin. Þú munt ekki sjá þessa manneskju aftur,“ segir Hamilton.

Keppni hefst á nýju tímabili í Formúlu 1 í Melbourne í Ástralíu um helgina. Öllu verður því fylgt vel eftir á Sýn Sport Viaplay, heimili Formúlunnar á Íslandi.

Dagskráin í Formúlu 1 þessa vikuna:

  • 5. mars
  • 1:30 Æfing 1 (Sýn Sport Viaplay)
  • 5:00 Æfing 2 (Sýn Sport Viaplay)
  • 6. mars
  • 1:30 Æfing 3 (Sýn Sport Viaplay)
  • 5:00 Tímataka (Sýn Sport Viaplay)
  • 7. mars
  • 3:30 Kappakstur (Sýn Sport Viaplay)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×