Það sem koma skal? Sigurjón Njarðarson skrifar 8. mars 2026 12:01 Fyrir Alþingi liggur tillaga utanríkisráðherra um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu þann 29. ágúst næstkomandi. Eins og viðbúið var hefur þetta vakið viðbrögð. Jafn viðbúið var að ýmsir hafa, vitandi eða óafvitandi, reynt að mála væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu sem eitthvað annað en hún er. Að hún snúist um aðild að Evrópusambandinu, en ekki hvort að leita skuli eftir áliti þjóðarinnar á áframhaldandi viðræðum við Evrópusambandið um aðildarsamning sem svo yrði borinn undir þjóðina. Björn Bjarnason, f.v. þingmaður og ráðherra, gerir upplýsingagjöf utanríkisráðuneytisins að umfjöllunarefni í pistli á heimasíðunni sinni. Finnst ráðherranum fyrrverandi verra að ekki sé vikið að bréfi þáverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, til formanns ráðherraráðs ESB og stækkunarstjóra sambandsins í marsmánuði 2015. Ekki síður finnst ráðherranum fyrrverandi miður að úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið og þróun sambandsins skuli ekki vera meðal gagna sem getið er um á síðu ráðuneytisins. Um skort á þessu tvennu segir Björn. „Óhlutdræg miðlun upplýsinga er jafnan höfuðskylda stjórnvalda og sérstaklega á vefsíðum sem ætlað er að fræða almenning í aðdraganda kosninga. Utanríkisráðuneytið fellur á fyrsta prófinu.“ Það verður af orðum Björns Bjarnasonar ráðið að hann telji að gerð sé tilraun til að halda upplýsingum frá almenningi. Raunar fullyrðir hann fyrr í pistlinum að upplýsingasíða ráðuneytisins sýni að ekki sé unnt að treysta ráðuneytinu fyrir því að veita hlutlægar upplýsingar um þetta mál. Þetta eru alvarlegar staðhæfingar sem ekki er hægt að láta ótaldar. Um upplýsingasíðu ráðuneytisins Með sömu rökum og forsendum og Björn Bjarnason beitir má heimfæra sömu aðferðafræði upp á hann sjálfan. Hann nefnir hvergi í pistli sínum að á upplýsingaveitu ráðuneytisins séu hlekkir á ítarefni. Þar má m.a. finna: skýrslu um framvindu aðildarviðræðna frá 2013, öll útgefin gögn frá íslenskum stjórnvöldum um aðildarviðræðurnar frá 2009–2013, sams konar gagnasafn frá Evrópusambandinu, hlekk á Evrópuvef Háskóla Íslands og Alþingis, sem starfræktur er á vegum Vísindavefsins og að lokum hlekk á Brussel-vaktina, sem er fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart ESB. Á þessum vefum, auk greinargerðar tillögu að þjóðaratkvæðagreiðslu sem einnig er hlekkjuð á upplýsingasíðu ráðuneytisins, er fjallað um stöðu aðildarviðræðnanna og tilurð skýrslu Hagfræðistofnunar. Stöðu aðildarviðræðna er vel lýst í ítarefni málsins og greinargerð þingsályktunartillögunnar. Hið stórkostlega bréf þáverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, er ágætis skemmtiefni og lærdómur í stjórnskipulegum klaufagangi, en hefur afar takmarkað upplýsingagildi fyrir kjósendur í væntanlegri þjóðaratkvæðisgreiðslu. Raunar tek ég undir með Birni Bjarnasyni að flestir hefðu gagn af því að lesa fyrrgreinda úttekt Hagfræðistofnunar. Vonandi verða skrif hans til þess að svo geri fleiri. En hvort að fjarvera hennar sé þess eðlis að unnt sé að gefa í skyn að utanríkisráðuneytinu sé ekki treystandi til óhlutdrægrar miðlunar upplýsinga er ekki sæmandi málflutningur. Sérstaklega þegar mikið magn af upplýsingum má finna á upplýsingavef ráðuneytisins. Þá hlýtur sú spurning að vakna hvort að lesa megi út úr orðum Björns Bjarnasonar að hann telji að Vísindavefur Háskóla Íslands sé ekki að veita óhlutlægar upplýsingar. Það væri ómaklegt að væna upp á Björn Bjarnason að hann hefði fallið á eigin prófi. Hann er í engri skuld við undirritaðan. Það væri þó óskandi að pistill hans um heilindi utanríkisráðuneytisins sé ekki undanfari þess sem koma skal. Það væri afar fróðlegt að vita hug hans til væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu og hvort að hann telji ekki að það væri samfélaginu öllu til framdráttar að fá fram aðildarsamning sem íslenska þjóðin geti tekið afstöðu til. Upplýsingasíðu ráðuneytisins má finna hér. Höfundur er lögfræðingur og framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Njarðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar