Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Aron Guðmundsson skrifar 9. mars 2026 10:32 Snör viðbrögð Franco Colapinto, ökuþórs Alpine liðsins, sáu til þess að ekki fór illa strax við upphaf ástralska kappakstursins i Formúlu 1 um nýliðna helgi. Vísir/Samsett Litlu mátti muna að harður árekstur ætti sér stað í byrjun ástralska kappakstursins í Formúlu 1 um nýliðna helgi. Snör viðbrögð Franco Colapinto, ökuþórs Alpine, urðu til þess að ekki fór illa.
Fyrsta keppnishelgi tímabilsins fór fram í Albert Park í Ástralíu um nýliðna helgi og þar var það lið Mercedes sem hrósaði sigri en aðalökuþór liðsins George Russell endaði í fyrsta sæti og liðsfélagi hans Andrea Kimi Antonelli í því öðru á undan Ferrari ökuþórunum tveimur. Miklar breytingar hafa átt sér stað í mótaröðinni milli tímabila og eru bílarnir sem keppt er á núna töluvert frábrugðnir bílum undanfarinna ára. Þegar svona stórar breytingar eiga sér stað er hægt að búast við því að liðin lendi í ýmsu brasi í fyrstu keppnum tímabilsins litlu mátti muna að stórslys ætti sér stað við upphaf keppni helgarinnar. We all had the same response to Franco's impressive reactions at the start! 🤯 #F1 #AusGP pic.twitter.com/PvSfBv7HDe— Formula 1 (@F1) March 8, 2026 Bíll Liam Lawson, ökuþórs Racing Bull liðsins, virtist missa afl um stundarsakir eftir að keppnin hafði verið ræst í gær og sat nær í kyrrstöðu eftir á ráslínunni á meðan að aðrir ökuþórar þutu fram hjá honum á sínum bílum. Franco Colapinto, ökuþór Alpine liðsins, átti flotta ræsingu í keppninni en var einnig val vakandi. Það sást í ótrúlegum viðbrögðum hans er afar litlu, nær engu, mátti muna að hann æki á fullum hraða beint aftan á bíl Lawson. Atvikið sást ekki í beinni útsendingu frá keppninni er það gerðist en var sýnt í ökuþóraherberginu eftir keppni þar sem efstu þrír ökuþórar keppninnar fengu að sjá það í fyrsta sinn. Viðbrögð þeirra voru þau sömu og annarra sem voru að sjá það í fyrsta skipti.
Akstursíþróttir Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Handbolti Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Fleiri fréttir Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira