Gæti misst af titilvörninni Valur Páll Eiríksson skrifar 10. mars 2026 13:15 McIlroy er slæmur í bakinu. Vaughn Ridley/Getty Images Rory McIlroy neyddist til að draga sig úr keppni á Arnold Palmer-boðsmótinu í golfi um helgina vegna bakmeiðsla. Óvíst er með þátttöku hans á Players-móti helgarinnar.
McIlroy á titil að verja á Players-mótinu en koma hans á Sawgrass-völlinn, þar sem mótið fer fram, dregst vegna meiðslanna. Hann vonast þó til að taka þátt. Flestir keppendur eru mættir á staðinn en McIlroy segist enn vera að glíma við bakmeiðsl sem tóku sig upp um helgina. Hann stefni á að mæta á Sawgrass á miðvikudag. Hann var á fjórum undir pari fyrir hringi helgarinnar á Palmer-mótinu en dró sig úr keppni aðeins hálftíma fyrir upphafshöggið á laugardaginn var. Það er aðeins í þriðja sinn á löngum ferli McIlroy sem hann dregur sig úr keppni vegna meiðsla. „Ég fann verk í bakinu í upphitun og þegar ég fór að slá bolta versnaði ástandið og ég fékk ítrekaða krampa í bakið,“ sagði McIlroy um helgina. McIlroy vonast hins vegar til að verja titilinn og vinna hann í þriðja sinn, eftir að hafa áður unnið Players-mótið 2019. Hann myndi með því jafna Jack Nicklaus sem er sá eini sem hefur unnið mótið þrisvar. Meiðslin koma ekki upp á besta tíma en það styttist í að risamótin fari af stað. McIlroy fagnaði sigri á Masters-mótinu á Augusta National-vellinum í fyrsta sinn í fyrra en Masters-mótið fer fram eftir sléttan mánuð.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira