Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. mars 2026 07:01 David Panka hélt að hann væri að fara á reynslu hjá alvöru atvinnumannaliði, en varð fyrir miklum vonbrigðum hjá Ægi. Fótboltamaðurinn David Jonathan Panka átti alls ekki góða reynslu hér á landi og sagði frá misheppnaðri tilraun sinni til að semja við lið Ægis í Lengjudeildinni.
Panka er 26 ára Hollendingur sem átti ágætis feril fyrstu árin í fótboltanum en horfir nú á tækifærin fjara út. Hann kom hingað til lands í leit að samningi og var á reynslu hjá liði Ægis, en entist aðeins í tvo daga. Fyrir það fyrsta virðist hann hafa misskilið eitthvað og haldið að Ægir sé alvöru atvinnumannalið, sem það er alls ekki. Smæð klúbbsins kom honum á óvart og svo fékk Panka líka mikið sjokk þegar hann kom fyrst til Þorlákshafnar. „Mig langaði alltaf til að heimsækja Ísland að minnsta kosti einu sinni… Ég vanmat loftslagið hér alveg svakalega. Svona líta flestir dagar út hérna, það er skítkalt,“ sagði Panka og sýndi snjóþungann í Þorlákshöfn þann daginn. Hitti ekki þjálfarinn og fékk áfall við að horfa á leik Reynslunni hjá liði Ægis lýsir hann sem „kaótískri.“ Þjálfarinn var veikur og gat ekki hitt hann fyrstu dagana þannig að Panka æfði einn í lyftingasalnum. Svo kom það Panka verulega á óvart hversu lélegt liðið væri þegar hann sá Ægi tapa 3-1 gegn Keflavík. „Ég gat ekki séð hvernig þetta lið á að geta verið samkeppnishæft. Þeir töpuðu 3-1 en hefðu getað tapað svona 30-0.“ Þegar þjálfarinn var búinn að jafna sig af veikindum og Panka fór loksins að æfa með liðinu sannfærðist hann ekkert frekar og benti aftur á hversu slakt Ægis liðið væri. „Þó leikmennirnir væru mjög almennilegir var þetta alls ekki eitthvað fyrir mig. Þetta var allt of mikil áhugamennska. Eins og að mæta fimm mínútum fyrir æfingu? Það er eitthvað sem þú gerir sem krakki.“ „Ég vildi alls ekki spila þarna“ Á endanum hafði Ægir ekki áhuga á því að semja við Panka og tilfinningin var svo sannarlega gagnkvæm. „Eftir að hafa tekið tvær æfingar þá átti ég spjall við þjálfarann og hann sagðist ekki vilja fá mig því ég hefði ekki sýnt að ég virkilega vildi ná árangri. Hann sagði að ég hefði alls ekki tekið reynslunni alvarlega, ekki lagt nógu mikið á mig. Ég meinti það ekki þannig, en það var hægt að sjá á mér að ég vildi alls ekki spila þarna,“ sagði Panka. Instagram færslu hans, þar sem hann lýsir sínum hrakförum, má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by David Jonathan Panka (@davidjpanka_)
Lengjudeild karla Ægir Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah Sjá meira