Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. mars 2026 23:20 Ludvig Aberg er með tveggja högga forystu eftir fyrri tvo dagana. David Cannon/Getty Images Annar dagur Players meistaramótsins á Sawgrass vellinum í Flórída í Bandaríkjunum fór fram í dag. Vallarmet féll en ríkjandi meistarinn Rory McIlroy og efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, stóðu í ströngu.
Xander Schauffele var í efsta sætinu þegar hann kláraði hringinn en sænski kylfingurinn Ludvig Aberg tók toppsætið af honum með frábærri frammistöðu. Aberg setti vallarmet með því að fara fyrri níu holurnar á aðeins 29 höggum og tyllti sér í toppsætið með tveggja högga forystu eftir að hafa farið hringinn á 63 höggum. Did Ludvig just shoot 29 on the front nine?Yes, yes he did. 🤯#THEPLAYERSpic.twitter.com/X34PHtkHmC— THE PLAYERS (@THEPLAYERS) March 13, 2026 Rory McIlroy var hins vegar í vandræðum eftir að hafa farið hringinn á 74 höggum, tveimur yfir pari, í gær. Hann er að glíma við bakmeiðsli og spilar þjáður. Ríkjandi meistari mótsins og næstefsti kylfingur heimslistans virtist jafnvel ekki ætla að ná í gegnum niðurskurðinn, en hann sýndi mikla snilli á síðustu holunni og bjargaði sér með sínum þriðja fugli fugli. McIlroy er nú einu höggi yfir pari eftir fyrstu tvo hringina en skurðarlínan er áætluð tveimur höggum yfir pari. Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, dansaði á línunni og var næstum því búinn að lenda í niðurskurði á PGA móti í fyrsta sinn síðan 2022. Hann rétt slapp í gegn, tveimur höggum yfir pari, eftir frábært teighögg á átjándu holu.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira