Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 09:03 Andrea Kimi Antonelli kom, sá og sigraði í Kína kappakstrinum í Formúlu 1 í morgun. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, George Russell endaði í öðru sæti á undan Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari Vísir/Getty Hinn nítján ára gamli Andrea Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes sótti sinn fyrsta sigur á Formúlu 1 ferlinum í Kína kappakstrinum í morgun. Liðsfélagi hans George Russell varð annar og sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hjá Ferrari náði kærkomnu sæti á verðlaunapalli.
Keppni dagsins bauð upp á skemmtilega baráttu innan brautar en einnig dramatík utan hennar því ríkjandi heimsmeistarar McLaren voru í tómu tjóni í dag. Bilun kom upp í báðum bílum liðsins fyrir keppni sem olli því að hvorki heimsmeistarinn Lando Norris, né liðsfélagi hans Oscar Piastri gátu tekið þátt í keppni dagsins. Líkt og var raunin í fyrstu umferð tímabilsins í Ástralíu var ræsingin fjörleg og tókst Lewis Hamilton að koma sér fram fyrir báða bíla Mercedes og upp í fyrsta sæti. Því var á endanum svarað með því að Kimi Antonelli, sem hóf keppnina á ráspól, kom sér aftur upp í fyrsta sætið og hélt því út keppnina með afar fagmannlegum akstri. Baráttan var ögn meiri milli liðsfélaga hans George Russell og Ferrari ökuþóranna tveggja sem tókst að valda Russell usla eftir að öryggisbíll var kallaður úr í brautina. Russell náði þó á endanum að koma sér fram fyrir báða bíla ítalska risans og sigla heim öðru sætinu á meðan að baráttann milli Ferrari ökuþóranna tveggja var afar mikil. Það má ætla að liðsstjóri Ferrari, Fred Vasseur, hafi ekki verið sá rólegasti er Leclerc og Hamilton háðu harða baráttu innan brautar en á endanum var það reynsluboltinn mikli, Lewis Hamilton, sem landaði þriðja sætinu. Sigur Kimi Antonelli er afar merkilegur, hans fyrsti sigur í Formúlu 1 eftir að hafa komið inn í mótaröðina á síðasta tímabili. Þá var þetta fyrsti sigur ökuþórs frá Ítalíu í mótaröðinni síðan árið 2006 þegar að Giancarlo Fisichella, þá ökuþór Renault, sigraði Malasíu kappaksturinn í annarri umferð þess tímabils. Mercedes menn voru skiljanlega mjög stoltir af sínum manni eftir keppni morgunsins. Hér má sjá Toto Wolff, framkvæmdastjóra Mercedes liðsins óska Kimi til hamingju og með þeim er Peter Bonnington, helsti aðstoðarmaður Kimi á meðan á keppni stendur.Vísir/Getty George Russell fylgdi eftir sigri sínum í fyrstu umferð tímabilsins með því að landa öðru sætinu í dag og Hamilton steig í fyrsta sinn á verðlaunapall síðan í Las Vegas árið 2024 og í fyrsta sinn í aðalkeppni fyrir Ferrari á ferlinum. Hamilton sýndi það í dag að hann á nóg eftir og getur vel barist við fremstu ökuþóra. Fjórfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen var í brasi í dag á bíl Red Bull og kláraði ekki keppnina. Liðsfélagi hans Isack Hadjar endaði í áttunda sæti en ljóst að McLaren og Red Bull Racing eru að eiga hörmungar byrjun á tímabilinu og eru þessa stundina langt á eftir Mercedes og Ferrari. Nú tekur við hálfs mánaðar hlé á keppni í Formúlu 1. Næst tekur við keppnishelgi á Suzuka brautinni í Japan helgina 27.-29. mars.
Akstursíþróttir Mest lesið „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Íslenski boltinn Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Mikið tap á rekstri HSÍ: „Verulegar áhyggjur“ Handbolti Fór úr fingurlið og menn gátu ekki horft Körfubolti Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Enski boltinn Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golf Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Íslenski boltinn Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira