Daníel Ingi með stoðsendinguna að dramatísku sigurmarki Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 15:09 Daníel Ingi, leikmaður Nordsjælland FC Nordsjælland Daníel Ingi Jóhannesson átti stoðsendinguna að dramatísku sigurmarki Nordsjælland gegn Midtjylland í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Elías Rafn stóð vaktina í marki Midtjylland og þurfti að sætta sig við svekkjandi tap líkt og Rúnar Alex Rúnarsson sem stóð vaktina í marki FC Kaupmannahafnar, annan leikinn í röð.
Rúnar Alex hafði fengið sjaldséð tækifæri í marki FC Kaupmannahafnar gegn Viborg í danska bikarnum á dögunum þar sem að hann stóð sig vel í 2-1 sigri og fékk því aftur traustið í leik dagsins. Gengi FC Kaupmannahafnar alls ekki staðist væntingar á yfirstandandi tímabili og að vera í neðri hluta dönsku deildarinnar er eitthvað sem stuðningsmenn liðsins sætta sig ekki við en Jordan Larsson kom liðinu yfir í leik dagsins með marki á 24.mínútu. Þannig stóðu leikar allt þar til á 78.mínútu þegar að Julius Berthel Askou jafnaði metin fyrir OB. 1-1. Skömmu eftir jöfnunarmarkið kom Rasmus Falk, fyrrverandi leikmaður FC Kaupmannahafnar, OB yfir 2-1 eftir vandræðagang í vörn FC Kaupmannahafnar og reyndist það sigurmark leiksins. Mögnuð endurkoma OB staðreynd en dapurt gengi Kaupmannahafnarbúa heldur áfram. Sigurinn gerir það að verkum að OB kemst upp fyrir FC Kaupmannahöfn í efsta sæti neðri hlutans og er þar með einu stigi meira en FC Kaupmannahöfn í öðru sæti neðri hlutans. Viktor Bjarki Daðason var fjarri góðu gamni í liði FC Kaupmannahafnar í dag. Afar svekkjandi úrslit hjá Elíasi Í efri hluta deildarinnar stóð Elías Rafn Ólafsson vaktina í marki FC Midtjylland sem fór illa að ráði sínu og tapaði á dramatískan máta gegn FC Nordsjælland. Daníel Ingi Jóhannesson kom inn á sem varamaður í liði Nordsjælland á 80. mínútu og lét heldur betur til sín taka Daníel átti stoðsendinguna að sigurmarki leiksins í uppbótartíma venjulegs leiktíma en þar varð Midtjylland af mikilvægum stigum í toppbaráttu deildarinnar. Nú er liðið fjórum stigum á eftir toppliði AGF sem á einnig leik til góða.
Danski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Aston Villa | Komast heimamenn á blað? Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref JJ Gabriel mættur til Barcelona Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Hlín hafði betur í Íslendingaslagnum í Svíþjóð Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga Sjá meira