Hákon markahæstur hjá Lille í deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 21:40 Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille gera harða atlögu að því að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. getty/Jean Catuffe Lille vann 1-2 útisigur á Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Hákon Arnar Haraldsson skoraði annað mark Lille.
Eftir erfitt gengi hefur landið risið hjá Lille að undanförnu. Sigurinn í kvöld var sá þriðji í síðustu fjórum deildarleikjum hjá Hákoni og félögum. Lille er nú með 44 stig í 5. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Lyon sem er í 4. sætinu. Liðið sem endar þar fer í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta tímabili. Lille byrjaði leik kvöldsins af miklum krafti og náði forystunni strax á 2. mínútu. Matias Fernandez-Pardo skoraði þá. Í upphafi seinni hálfleiks brunaði Lille í skyndisókn og Fernandez-Pardo lagði boltann til hliðar á Hákon sem skoraði af stuttu færi. Þetta var sjötta mark Hákonar í frönsku úrvalsdeildinni í vetur en enginn leikmaður Lille hefur skorað meira. Skagamaðurinn hefur alls gert sjö mörk á þessu tímabili og tuttugu í heildina fyrir Lille. Estéban Lepaul minnkaði muninn fyrir Rennes í 1-2 á 59. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Á fimmtudaginn sækir Lille Aston Villa heim í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Villa vann fyrri leikinn í Frakklandi, 0-1.
Franski boltinn Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta enda svona“ Fótbolti „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Enski boltinn „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Enski boltinn PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti Dagskráin: Getur Liverpool komið til baka í Meistaradeildinni? Sport Fleiri fréttir Ísland spilar í Tókýó í sumar Týndi sjálfum sér en mætir með „eld í augunum“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta enda svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Sjá meira