Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Terra 18. mars 2026 11:02 Terra verður með bás á sýningunni Verk og vit þar sem starfsfólk kynnir m.a. djúpgáma. Karl F. Thorarensen er innkaupa- og birgðastjóri Terra. Terra tekur þátt í stórsýningunni Verk og vit sem hefst á morgun fimmtudag og fer fram í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Þetta er í sjöunda skiptið sem sýningin er haldin en hún er frábær vettvangur til að kynnast öllu því nýjasta í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð og kynna sér um leið spennandi vörur og þjónustu.
Sýningunni lýkur á sunnudag og hægt er að kynna sér dagskrána hér. Frá árinu 1984 hefur Terra starfað við söfnun og flokkun endurvinnsluefna og unnið með fyrirtækjum, heimilum og sveitarfélögum að umhverfisvænni úrgangsstjórnun, með það markmið að koma efnum aftur inn í hringrásarhagkerfið. „Það má því segja að við leggjum áherslu á að auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir með því að endurnýta, flokka og meðhöndla úrgang á ábyrgan hátt,“ segir Karl F. Thorarensen, innkaupa- og birgðastjóri Terra. Djúpgáma má finna víða á höfuðborgarvæðinu. Vinsældir djúpgáma hafa aukist jafnt og þétt „Við höfum um árabil boðið upp á djúpgáma og búum yfir víðtækri þekkingu og reynslu af notkun þeirra við íslenskar aðstæður,“ bætir Karl við. „Vinsældir djúpgámanna hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár en þeir eru mun snyrtilegri lausn en hefðbundnir yfirborðsgámar, þar sem markmiðið er að færa úrganginn neðanjarðar í stað þess að hafa gáma sýnilega á yfirborðinu. Þannig skapast betri ásýnd í hverfunum og úrgangurinn verður minna áberandi í daglegu lífi og umhverfi fólks.“ Þótt djúpgámar séu vissulega dýrari en aðrar sambærilegar lausnir eru þeir mjög hentugir fyrir húsfélög og þá sérstaklega í fjölbýlishúsum. „Þá er hægt að koma úrganginum út á snyrtilegan og þægilegan hátt í stað þess að vera með plássfrekar og dýrar sorpgeymslur inni í húsunum sem taka pláss og gefa jafnvel frá sér ólykt. Notkun djúpgáma einfaldar því bæði umhirðu og losun og bætir heildarupplifun íbúa.“ Um leið henta djúpgámarnir afar vel fyrir sveitarfélög sem reka grenndarstöðvar. Tilvalin lausn í nýjum hverfum Víða um land má sjá dæmi um þessa þróun, til að mynda í nýjum hverfum og byggingarreitum þar sem djúpgámar eru orðnir sjálfsagður hluti af skipulagi enda hægt að gera ráð fyrir þeim strax á teikningum og í skipulagi svæðisins. Þar má nefna sem dæmi hverfi á höfuðborgarsvæðinu eins og Vogahverfi, Hlíðarenda, Kirkjusandi og Urriðaholti. Einnig hefur Terra sett þá upp á Akureyri. Þó getur reynst erfitt að koma þeim fyrir í eldri hverfum. „Við slíkar aðstæður mælum við frekar með hálfniðurgröfnum eða vönduðum yfirborðsgámum. Terra býður upp á fjölbreytt úrval slíkra lausna sem hægt er að aðlaga að aðstæðum, skipulagi og þörfum hvers svæðis.“ Djúpgámar við nýlegt fjölbýlishús í Mosfellsbæ. Stafræn umbreyting á fullri ferð Samhliða þessari þróun hefur Terra lagt mikla áherslu á stafræna umbreytingu í rekstri fyrirtækisins. „Við köllum þetta gagnadrifna nálgun; að færa verkferla yfir í stafrænt form og byggja ákvarðanir á gögnum frekar en venjum eða tilfinningum,“ segir Karl og nefnir sem dæmi að í stað þess að keyra sömu leiðir ár eftir ár, óháð því hvort ílát eru hálftóm eða yfirfull, sé nú notast við skynjara sem mæla fyllingarstig í gámum. „Þegar þeir ná ákveðnu hlutfalli, til dæmis 70–80%, getum við skipulagt losun út frá raunverulegri þörf.“ Karl segir að árið 2022 hafi markaði ákveðin tímamót í þessari þróun og breytingarnar hafa gengið afar vel. „Við erum að tala um stærstu breytingu á starfsemi fyrirtækisins í yfir 40 ára sögu þess. Ný tækni hefur gjörbreytt því hvernig úrgangur er sóttur, skipulagður og greindur.“ Nýr stafrænn þjónustuvefur sem tengir saman gáma, skynjara og gagnadrifna þjónustu í einu vistkerfi er mikilvægur liður í þessari umbreytingu. „Viðskiptavinir geta þar pantað losun íláta hvenær sem er sólarhringsins, fengið rauntímayfirsýn yfir stöðu íláta og þjónustudagatal og nálgast ítarleg gögn um úrgang og flokkun, bæði í kílóum og hlutföllum. Þetta eru gögn sem styðja við umhverfismælingar og grænt bókhald.“ Aðgangur að vefnum er öruggur og einstaklingsbundinn með rafrænum skilríkjum sem spari bæði eldsneyti og mannafla og tryggi að tæki og starfsfólk séu nýtt þar sem þörfin er mest. „Um leið er þetta hagkvæmt fyrir viðskiptavini sem greiða þá ekki fyrir að tæma hálftóm ílát. Þetta er því raunverulegur gagnkvæmur ávinningur þar sem bæði rekstur og umhverfi njóta góðs af. Það hefur því verið algjör vendipunktur í rekstri fyrirtækisins að byggja ákvarðanir á gögnum frekar en venjum eða tilfinningum,“ segir Karl að lokum. Sérfræðingar Terra verða á bás B30 á sýningunni Verk og vit. Verið hjartanlega velkomin!
Umhverfismál Sorphirða Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Neytendur Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Viðskipti innlent Fleiri fréttir BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl