Læsi er grunnur alls náms, við getum gert betur Björn Guðmundsson skrifar 18. mars 2026 13:31 Of margir nemendur ljúka grunnskóla á Íslandi án þess að geta tekist á við texta á viðunandi stigi. Í lok fyrsta bekks í grunnskóla er viðmiðið að geta lesið 55 orð á mínútu en 69 % nemenda náðu því viðmiði ekki árið 2024. Það er alvarlegt vandamál ekki aðeins fyrir viðkomandi börn heldur fyrir samfélagið allt. Í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga langar mig að bæta við umræðuna um menntamálin. Því það er mikilvægt að ræða hvernig við ætlum að bregðast við. Undanfarið hefur staða læsis meðal barna í grunnskólum landsins verið til umræðu. Niðurstöður kannana bera ótvírætt með sér að of margir nemendur ljúka grunnskóla án þess að geta tekist á við texta á viðunandi stigi. Þetta er ekki ásættanlegt. Þetta er kerfislæg áskorun sem þjóðkjörnir fulltrúar bera skyldu til að takast á við. En við foreldrar og forráðamenn berum hér líka ábyrgð. Við þurfum að finna börnunum lesefni sem kveikir áhuga, lesa með þeim og stuðla að heilbrigðum svefni og mataræði, því vel hvíldir og vel nærðir hugar læra best. Læsi er undirstaðan sem allar aðrar námsgreinar byggja á, hvort sem um er að ræða stærðfræði, náttúruvísindi eða félagsfræði. Barn sem á í lestrarerfiðleikum á yngri stigum á á hættu að dragast aftur úr á öllum sviðum. Afleiðingar þess geta fylgt einstaklingnum alla ævi, bæði í menntun og á vinnumarkaði. Hvað þarf að gera? Í fyrsta lagi þurfum við að styrkja snemmtæka íhlutun. Rannsóknir sýna að þegar lestrarvandi er greindur snemma, í fyrsta eða öðrum bekk, og gripið er til markvissrar stuðningskennslu, tekst langflestum börnum að ná góðum tökum á lestri. Reykjavíkurborg hefur bæði tæki og tækifæri til að vera í fararbroddi þessarar vinnu. Í öðru lagi þarf að fjölga sérkennurum og talmeinafræðingum í leik- og grunnskólum. Of margir skólar glíma í dag við biðlista eftir mati á sérþörfum. Við getum ekki látið börnin bíða, sérstaklega þegar um læsi er að ræða, þar sem snemmtæk íhlutun skiptir öllu máli. Í þriðja lagi þarf að efla samstarf skóla og heimilis. Foreldrar og forráðamenn eru ómetanlegir samstarfsaðilar. Þar sem skólar og heimili vinna saman að lestri, hvort sem það er með markvissum heimalestrarleiðbeiningum eða reglulegum samræðum um framfarir nemenda, eru niðurstöðurnar marktækt betri. Læsi er líka jafnréttismál Það er engin tilviljun að börn úr lægri tekjuhópum og börn sem hafa annað móðurmál en íslensku lenda oftar í lestrarerfiðleikum. Kerfið okkar þarf að vera meðvitað um þetta og bregðast við í samræmi við það. Jafnrétti í menntun þýðir ekki að bjóða öllum það sama, það þýðir að gefa hverjum og einum þann stuðning sem hann þarf til að dafna. Norðurlöndin hafa brugðist við – ætlum við að vera eftirbátar? PIRLS-könnunin (Progress in International Reading Literacy Study) mælir lestrarfærni tíu ára barna á fimm ára fresti og ber saman læsisfærni þjóða um allan heim. Niðurstöður hennar frá 2021 sýndu að lestrargeta tíu ára barna dróst saman á Norðurlöndunum á tímabilinu 2016–2021. Noregur, Danmörk og Svíþjóð hafa brugðist við með kröftugum fjárfestingum í úrbótum. Ætlum við Íslendingar að vera eftirlegukindur frænda okkar eða forystusauðir? Í komandi sveitarstjórnarkosningum skora ég á alla flokka að setja þetta mál í forgang líkt og við í Vor til vinstri gerum. Reykjavík á að vera borg þar sem öll börn fá tækifæri til að blómstra – og það byrjar á því að tryggja að öll börn geti lesið sér til gagns og haft að því gaman. Höfundur er félagi í Vor til vinstri og foreldri barns í grunnskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun