Guðrún Brá í góðri stöðu eftir einn besta hringinn á ferlinum Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. mars 2026 16:52 Guðrún Brá hefur spilað stórvel í Suður-Afríku síðustu vikur. Getty/Charles McQuillan Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék einn besta golfhringinn á sínum ferli í Suður-Afríku í dag og kom sér í góða stöðu fyrir lokadaginn á Platinum Ladies Open mótinu.
Guðrún lék hringinn í gær á 69 höggum, þremur undir pari vallarins. Hún fékk þar þrjá fugla og tapaði ekki höggi. Í dag bætti hún svo um betur og fór hringinn á aðeins 66 höggum, sex undir pari vallarins og á þessum átján holum tók Guðrún aðeins 27 pútt. Hún fékk sjö fugla og einn skolla á þessum magnaða hring og kom sér upp í sjötta sæti mótsins fyrir lokahringinn á morgun. Þetta er fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine mótaröðinni í ár, en hún hefur leikið gott golf í Suður-Afríku að undanförnu. Með öðrum góðum hring á morgun gæti hún náð aftur á verðlaunapall eins og á fyrsta móti tímabilsins þar sem Guðrún varð í 3. sæti. Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir voru einnig á meðal keppenda mótsins en náðu ekki í gegnum niðurskurð. Hulda Clara lék mótið á einu höggi undir pari og Andrea lauk leik á þremur höggum yfir pari.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira