Ósáttur við umræðuna og gagnrýnir keppniauta Mercedes Aron Guðmundsson skrifar 26. mars 2026 16:32 George Russell, ökuþór Mercedes og forystusauður í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1. Vísir/Getty George Russell, ökuþór Formúlu 1 liðs Mercedes, gagnrýnir önnur lið mótaraðarinnar sem hann segir reyna allt sem þau geta til þess að hægja á bíl liðsins. Mikil umræða hefur skapast um lögmæti framvængsins á bíl Mercedes.
Mercedes hefur farið afar vel af stað á tímabilinu til þessa og unnið báðar keppnirnar fyrir þriðju keppnishelgi tímabilsins í Japan um komandi helgi. George Russell leiðir stigakeppni ökuþóra en það var liðsfélagi hans Kimi Antonelli sem bar sigur úr býtum í kínverska kappakstrinum í síðustu umferð. Það dylst engum að Mercedes er með hraðasta bílinn í upphafi tímabils en mikil umræða hefur skapast eftir síðustu keppni varðandi lögmæti framvængsins á bíl Mercedes. Kveðið er á um það í nýju regluverki Formúlu 1 sem tekið var í notkun fyrir yfirstandandi tímabil að bæði aftur- og framvængur bílanna megi opnast á ákveðnum stöðum í hverri braut fyrir sig. Utan þeirra kafla verði þeir að verða lokaðir. Eftir kínverska kappaksturinn vakti athygli myndband af Mercedes bíl Kimi Antonelli í brautinni þar sem sjá mátti opnun á framvængnum á stað þar sem hann á að vera lokaður. Er það mat liðsmanna annarra liða að þar hafi Kimi grætt góðan tíma. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem efast er um lögmæti Mercedes bílsins en fyrir tímabilið var mikið rætt um vélarbúnað liðsins. George Russell hefur fengið sig fullsaddann af kvörtunum annarra liða. Það hafi ekki verið vísvitandi hjá Mercedes að vængurinn á bil Kimi hafi verið opinn, heldur sé um að ræða vandamál sem verið sé að vinna í að leysa. „Bara vegna þess að við erum komnir aftur í fremstu röð finnst mér það ekki réttlátt af hinum liðunum að reyna hægja á okkur með öllum tilteknum ráðum. Sér í lagi þegar aðeins tvær keppnishelgar eru liðnar af tímabilinu,“ sagði Russell í samtali við Sky Sports. Sýnt verður beint frá allri keppnishelgi Formúlu 1 í Japan um komandi helgi á Sýn Sport Viaplay.
Akstursíþróttir Mest lesið Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Körfubolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Sport Fleiri fréttir „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Sjá meira