Erindislaus meirihluti leggur á flótta Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 27. mars 2026 14:02 Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að frítt verði í Strætó fyrir öll börn og ungmenni í Hafnarfirði að 18 ára aldri. Sömuleiðis hefur jafnaðarfólk barist fyrir því að hafin verði uppbygging á íbúðum fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skellir hins vegar skollaeyrum við þessum brýnu hagsmunamálum barna og ungmenna og eldra fólks í bænum og vísar tillögum okkar jafnharðan frá í bæjarstjórn. Enda hafa umræður í bæjarstjórn leitt í ljós að meirihlutinn kemur algjörlega tómhentur að borðinu, hefur ekkert til málanna að leggja og leggur á flótta undan umræðunni. Og nú er örvæntingin og málefnafátæktin orðin slík að forseti er látinn beita klækjabrögðum til þess að koma í veg fyrir eðlilega og lýðræðislega umræðu í bæjarstjórn. Hættulegt fordæmi til framtíðar Á bæjarstjórnarfundi í vikunni keyrði svo um þverbak þegar forseti bæjarstjórnar, sem hafði ráðfært sig við félaga sína í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki, lagði til að fyrrnefndar tillögur okkar í Samfylkingunni yrðu teknar af dagskrá fundarins. Og hver var ástæðan? Jú, þær hefðu áður verið ræddar í bæjarstjórn. Við mótmæltum að sjálfsögðu harðlega þessum fordæmalausu og ólýðræðislegu vinnubrögðum forseta bæjarstjórnar og meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem skapar með þessu hættulegt fordæmi til framtíðar. Fordæmi þar sem meirihluti bæjarstjórnar hverju sinni getur einfaldlega kippt af dagskrá málum minnihlutans, sem ratað hafa á útsenda dagskrá eftir réttum leiðum, líki meirihlutanum ekki málefnið eða finnist umræðan óþægileg. Það sér hver maður að þetta getur aldrei gengið upp. Frítt í strætó – endalausir tafaleikir Það er kannski hægt að hafa samúð með fulltrúum meirihlutans hvað þetta varðar þar sem þessi tvö mál varpa ljósi á aðgerðaleysi hans á kjörtímabilinu. Frítt í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri hefur verið til umræðu allt kjörtímabilið og Samfylkingin lagt það til við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu og Ungmennaráð Hafnarfjarðar sömuleiðis lagt það til. Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur einnig lýst yfir stuðningi við markmið tillögunnar. Við þetta bætist að nokkrir fulltrúar meirihlutans hafa lýst yfir stuðningi við tillöguna efnislega en taka fullan þátt í tafa-og biðleikjum meirihlutans. Greiningarvinna við lok kjörtímabils vegna máls sem átti að hraða í upphafi þess Afstaða meirihlutans til tillögunnar um íbúðir fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu rammar svo snyrtilega inn erindisleysi hans á kjörtímabilinu. Í upphafi þess lagði meirihlutinn til að uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk, m.a. á Sólvangssvæðinu, yrði hraðað og sett í forgang. En hver er niðurstaðan í lok kjörtímabils? Jú, nú á lokametrum kjörtímabilsins, að fjórum árum liðnum, ætlar meirihlutinn að fara í greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna íbúða fyrir eldri íbúa. Tækifæri til breytinga í vor Hvað leiða þessi fordæmalausu og gerræðislegu vinnubrögð í ljós? Þau staðfesta einfaldlega að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er án erindis og leggur á flótta undan efnislegri umræðu um hagsmunamál bæjarbúa við hvert tækifæri. Þessu verður að breyta. Og það er tækifæri til þess í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Samfylkingin hefur sýnt það með málflutningi sínum á kjörtímabilinu, sem lýkur senn, að við erum með skýra sýn og stefnu fyrir Hafnarfjörð. Við hræðumst ekki umræðu um mál sem snúa að mikilvægum hagsmunum bæjarbúa og munum ekki stunda klækjabrögð eins og núverandi meirihluti gerir. Við ætlum hins vegar að láta verkin tala í þágu allra Hafnfirðinga með opinni og lýðræðislegri umræðu fáum við til þess stuðning og umboð frá kjósendum í kosningunum 16. maí næstkomandi. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun