Engdust um af sársauka í túrverkjaherminum Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. mars 2026 17:10 Andri og Guðjón engdust um af sársauka. Útvarpsmenn FM957 fengu að prófa á eigin skinni hvernig það er að upplifa bæði túrverki og endómetríósuverki. Jóna Margrét, sem er sjálf með endó, fann lítið fyrir verkjunum meðan Guðjón Smári æpti og engdist um af sársauka.
Unnur Regína Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Endósamtakanna, og Karen Ösp Friðriks, gjaldkeri samtakanna, kíktu í heimsókn í útvarpsþáttinn Traffíkina í vikunni og mættu með óvenjulega græju sem þær tengdu við þáttastjórnendur. „Guðjón kemur kannski ekki í vinnuna á morgun en það verður allt í lagi, ég lofa. Hann er að fara að prófa túrverkjaherminn okkar,“ sagði Unnur Regína í upphafi þáttar. „Ég viðurkenni að ég bjóst alveg við að þetta væri mál en ég er að fatta það núna að ég er búinn að koma mér út í vitleysu. En ég er ekkert að fara að bakka út núna,“ sagði Guðjón sem var þá kominn með fjóra tengla í kringum nárann. Mars er alþjóðlegur mánuður tileinkaður vitundarvakningu um endómetríósu og jafnframt fagna Endósamtökin tuttugu árum í ár. Endómetríósa er ástand þar sem vefur sem líkist legslímhúð vex annars staðar í líkamanum en samtökin veita konum með endómetríósu stuðning og ráðgjöf. „Ég er svo forvitinn því einu útskýringar sem við strákarnir fáum við endómetríósu eru að þetta séu ótrúlega miklir túrverkir. Er það málið?“ „Nei, það er ekki málið. Það er eiginlega ekki hægt að bera saman túrverki og endóverki. Ímyndaðu þér túrverki nema bara á sterum,“ sagði Unnur Regína sem leyfði Guðjóni að finna fyrir bæði túrverkjum og kröftugri endóverkjum. Guðjón var fljótur að finna fyrir verkjunum, æpti og engdist nánast um leið. Bæði Jóna Margrét og Andri Björns fengu að prófa græjuna. Hér má sjá klippu af þeim prófa græjuna en sjón er sögu ríkari: Klippa: Útvarpsmenn prófa endómetríósuhermi
Heilbrigðismál FM957 Grín og gaman Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Fleiri fréttir Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Sjá meira