Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erling Haaland skoraði þrívegis gegn Liverpool í dag og er kominn með 33 mörk í öllum keppnum á tímabilinu.
Erling Haaland skoraði þrívegis gegn Liverpool í dag og er kominn með 33 mörk í öllum keppnum á tímabilinu. getty/Carl Recine

Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar.

Haaland lék ekki með Noregi í landsleikjahléinu og hann virtist hafa gott af hvíldinni.

Haaland kom City yfir með marki úr vítaspyrnu á 39. mínútu. Hún var dæmd á Virgil van Dijk fyrir brot á Nico O'Reilly.

Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik jók Haaland muninn í 2-0 með skalla eftir fyrirgjöf frá Antoine Semenyo.

Vonir Liverpool um endurkomu í seinni hálfleik urðu nánast að engu á 50. mínútu þegar Semenyo skoraði þriðja mark City. Haaland gerði svo þriðja mark sitt og fjórða mark heimamanna á 57. mínútu með skoti af stuttu færi í slá og inn eftir sendingu frá O'Reilly.

Sjö mínútum seinna fékk Liverpool tækifæri til að laga stöðuna þegar Matheus Nunes braut á Hugo Ekitke innan vítateigs. Mohamed Salah tók spyrnuna en James Trafford sá við honum og varði.

Það kemur í ljós á morgun hver andstæðingur City í undanúrslitunum verður.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Liverpool en á miðvikudaginn mætir liðið Paris Saint-Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira