Fór holu í höggi á alþjóðlegu móti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 11:30 Óliver Elí Björnsson með kúluna eftir að hafa farið holu í höggi. Golfsamband Íslands Íslenski landsliðskylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili fór holu í höggi á fjórðu holu PGA Aroeira 1-vallarins um helgina. Óliver var á meðal keppenda í GJG Juniors International-mótinu ásamt nítján öðrum landsliðskylfingum.
Fjórða hola PGA Aroeira 1 vallarins er 154 metrar og sló Óliver höggið með átta járni. Með högginu fullkomnaði landsliðskylfingurinn ótrúlegan fimm holu kafla sinn, er hann lék fimm holur á fimm höggum undir pari. Óliver hóf leik á tíundu holunni og lauk seinni níu holunum með fugli á átjándu holunni. Á fyrstu holunni fékk Óliver örn og fylgdi honum eftir með fugli á annarri. Hann fékk skolla á þriðju holunni og svo loks ás á þeirri fjórðu. Óliver lék hringinn á 71 höggi, einu undir pari, og endaði fjórði í mótinu. Það er frábær árangur hjá þessum efnilega kylfingi. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar stóð uppi sem sigurvegari kvenna á mótinu eftir flotta spilamennsku. Hún leiddi mótið frá fyrsta hring og lauk leik á fjórum höggum yfir pari í heildina. Eva lék hringina þrjá á 70-74-76 höggum og var fjórum höggum á undan hinni frönsku Céleste Bobo Lloret. Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð þriðja á þrettán höggum yfir pari. Hún lék hringi mótsins á 80-77-72 höggum. Arnar Daði Svavarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sem lék best íslensku strákanna. Hann lék mótið á einu höggi yfir pari í heildina og endaði þriðji. Arnar endaði mótið af krafti og fékk tvo erni á síðustu fjórum holum lokahringsins. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira