Fékk fyrirliðabandið og bauð upp á furðulega fimmu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 17:45 Sory Ibrahim Diarra var í sviðsljósinu í fyrstu umferð þökk sé óvenjulegu fimmu sinni. @fk_haugesund Sory Ibrahim Diarra skoraði líklega eina sérstökustu fimmu í sögu fótboltans í leik í norsku B-deildinni í fótbolta í gær.
Diarra er fyrirliði gamla Íslendingaliðsins Haugesund sem féll úr deildinni síðasta haust eftir sextán tímabil í úrvalsdeildinni. Þetta er liðið sem Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfaði í stuttan tíma árið 2024 en bæði hann og íslenskir leikmenn þess hafa yfirgefið það síðan. Nú var komið að fyrsta leik liðsins í B-deildinni í mjög langan tíma og liðið vann þá 4-2 útisigur á Lyn í Osló. Frammistaða þessa 26 ára Malímanns stal þó öllum fyrirsögnum með sínum fimm mörkum. Diarra skoraði nefnilega fjögur mörk í rétt mark og eitt í rangt mark. Þetta var einmitt fyrsti leikur hans með fyrirliðabandið. Diarra kom hann Haugesund yfir eftir átta mínútna leik, áður en hann skoraði í rangt mark sautján mínútum síðar. Því næst sá hann um að skora mörkin sem komu liðinu í 2-1, 3-2 og 4-2. Í millitíðinni hafði Andreas Hellum minnkað muninn í 2-2 fyrir Lyn. Diarra hefur verið hjá Haugesund frá árinu 2023 en hafði mest skorað níu mörk á einu tímabili í öllum keppnum og skoraði samanlagt sjö mörk í 22 leikjum í fyrrasumar. Vefsíða Haugesund lék sér með atburði dagsins með því að slá upp fyrirsögninni „Sory, not Sory“. View this post on Instagram A post shared by OBOS-ligaen (@obosligaen)
Norski boltinn Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira