Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2026 14:00 Tinna fór vel yfir sjálfstraust í nýju innslagi Íslands í dag. Það er ekki alltaf það sem við sýnum út á við sem verður til þess að við tökum ekki af skarið í aðstæðum, heldur er það lágvær en áhrifamikil efasemdarödd innra með okkur sem stýrir ferðinni. Hún lætur mann bíða aðeins lengur, ofhugsa og í sumum tilfellum stoppar okkur hreinlega af.
En svo eru það þessi dýrmætu augnablik þar sem röddin er hundsuð og við segjum það sem við meinum og gerum það sem við viljum. Þá breytist oft eitthvað og sjálfstraustið eykst. Það skal tekið fram að hér er um almennt sjálfstraust að ræða en ekki lágt sjálfsmat, sem er klínískur vandi sem þarfnast meðferðar hjá sérfræðingum. En hvað er sjálfstraust? Hödd Vilhjálmsdóttir ræddi við sálfræðinginn Tinnu Baldursdóttur um þetta fyrirbæri sem sjálfstraust er í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. „Sjálfstraust er í rauninni eigið mat á virði og getu í ákveðnum aðstæðum. Það er ekki beint svona, ég er frábær, heldur meira, ég get tekist á við þetta. Þannig að í stuttu máli er sjálfstraust bara að treysta sjálfum sér til þess að takast á við aðstæður, áskoranir og verkefni,“ segir Tinna en sjálfstraust er ekki meðfætt líkt og til dæmis augnlitur. „Sjálfstraustið er ekki meðfætt.Það er meira svona eins og vöðvi sem hægt er að styrkja og þjálfa.Og með því að glíma við alls konar aðstæður,áskoranir og verkefni og upplifa að maður ráði við þau þá styrkist sjálfstraustið smám saman.“ Hvernig þekkjum við raunverulegt sjálfstraust hjá öðrum? „Það er erfitt að alhæfa það en rannsóknir sýna samt og gefa vísbendingar um að það eru ákveðin persónueinkenni sem birtast hjá fólki sem hefur raunverulegt sjálfstraust. Og það er stöðugleiki í hegðun. Það er hvorki brugðist við með svona ýktum viðbrögðum og heldur ekki einhvern veginn í felum. Þetta fólk þarf oft ekki alltaf að fá klapp á bakið eða hughreystingu og þetta fólk er líka með raunhæft mat á sjálfu sér, hvorki vanmat né ofmat. Það tekur pláss en tekur ekki alveg allt plássið og felur sig heldur ekki.“ Það er algengur misskilningur að fólkið sem hefur hæst sé endilega með mesta sjálfstraustið því raunverulegt sjálfstraust gerir fólki kleift að bara vera og sitja vel í sjálfu sér. Sjálfstraust getur verið neikvætt „Við sjáum náttúrulega bara yfirborðið og ekki sjálfstalið. Þannig að það getur verið mjög gagnlegt þegar maður er að takast á við nýjar, erfiðar, ógnvænlegar, einhverjar framandi aðstæður að setja undir sig hausinn og setja upp grímuna.“ Það er sjaldnast talað um sjálfstraust í neikvæðri merkingu eða að það geti verið skaðlegt. „Af því að svona raunverulegt sjálfstraust er rólegt og svona svolítið ákveðið og raunhæft mat á eigin getu. En ef það er talað um svona skaðlegt sjálfstraust þá er það oft eitthvað annað, svona ákveðinn varnarháttur, óstöðugleiki í einhverri hegðun. Það er stanslaust verið að óska eftir einhverju klappi á bakið eða svona staðfestingu. Eða annað sem heitir „grandiosity“ eða stórmennskuhugur.“ Með tilkomu samfélagsmiðla og gervigreindar ber fólk sig ekki lengur saman við einungis sitt nánasta umhverfi heldur heiminn allan og í sumum tilfellum ekki einu sinni raunverulegt fólk eða aðstæður. Þessi samanburður er eins og gefur að skilja hvorki raunhæfur né hollur. „Samanburður og mikill samanburður getur ekki bara haft áhrif á sjálfstraust heldur getur það líka haft áhrif á líðan og kvíða, svo það getur haft mjög neikvæð áhrif.“
Ísland í dag Mest lesið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Tónlist Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira